Fotbolti.net
07.02.26 - 10:30
Ívan Guðjón Baldursson

Frank kom nýju stjórnendunum til varnar

Frank kom nýju stjórnendunum til varnar
Canon

Mynd: Twitter

Thomas Frank þjálfari Tottenham svaraði spurningum á fréttamannafundi fyrir leik liðsins á útivelli gegn Manchester United sem fer fram í hádeginu í dag.
Frank var meðal annars spurður út í nýja stjórnendur félagsins sem tóku við af Daniel Levy eftir síðasta félagaskiptaglugga.

„Ég get bara hlegið að svona spurningum, eigendur félagsins og stjórnendurnir eru mjög alvarlegir. Ég tala reglulega við þá og hef engar efasemdir um að þeir séu alvarlegir. Mér finnst ósanngjarnt að dæma þá eftir einn janúarglugga," sagði Frank.

„Það er ekki hægt að dæma nýja eigendur eftir einn vetrarglugga. Dæmið þá eftir næstu glugga, ekki eftir þennan. Ég skil að það má gagnrýna félagið en það þarf líka að gæta sanngirni."

Tottenham er í neðri hluta úrvalsdeildarinnar með 29 stig eftir 24 umferðir og hefur verið að glíma við mikið af meiðslavandræðum upp á síðkastið.

Tottenham seldi Brennan Johnson í janúar og fékk Conor Gallagher inn fyrir svipaða upphæð, auk þess að festa kaup á efnilegum bakverði frá Brasilíu.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.