Ronaldo má fara - Chelsea í baráttuna um Vlahovic - Ramos aftur í frönsku deildina?
banner
   lau 07. febrúar 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ísland í dag - Livey sýnir beint frá Lengjubikarnum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er nóg um að vera í Lengjubikarnum í dag þar sem átta leikir eru á dagskrá, sex í karlaflokki og tveir í kvennaflokki.

Um helgina má fylgjast með ýmsum leikjum í Lengjubikarnum í beinni útsendingu á Livey. Í gær voru nokkrir áhugaverðir slagir og eru enn fleiri á dagskrá í dag.

Skoðaðu dagskrána

Keyptu áskrift

Hjá körlunum hefst veislan í Víkinni þegar Íslandsmeistararnir taka á móti Njarðvíkingum fyrir hádegi.

KR og Ægir eiga svo heimaleiki við Grindavík og Vestra áður en ÍBV fær Leiknismenn í heimsókn frá Breiðholti.

Deginum í karlaflokki lýkur þegar Akureyringarnir í liði Þórs og í liði KA kíkja suður til að spila við ÍA í Akraneshöllinni og ÍR í Egilshöllinni.

Í kvennaflokki spilar HK við Selfoss í Kórnum í hádeginu áður en Stjarnan og Þór/KA eigast við í spennandi slag í Garðabæ.

Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
12:00 Ægir-Vestri (Akraneshöllin)

Lengjubikar karla - A-deild, riðill 2
15:00 ÍA-Þór (Akraneshöllin)

Lengjubikar karla - A-deild, riðill 3
11:00 Víkingur R.-Njarðvík (Víkingsvöllur)
12:00 KR-Grindavík (KR-völlur)
16:30 ÍR-KA (Egilshöll)

Lengjubikar karla - A-deild, riðill 4
14:00 ÍBV-Leiknir R. (Hásteinsvöllur)

Lengjubikar kvenna - B-deild
11:30 HK-Selfoss (Kórinn)

Lengjubikar kvenna - A-deild, riðill 1
16:00 Stjarnan - Þór/KA (Samsungvöllurinn)
Athugasemdir
banner
banner