Cristiano Ronaldo gæti farið frá Al Nassr, Chelsea ætlar að berjast við Tottenham um Dusan Vlahovic og þá er Sergio Ramos að undirbúa endurkomu í boltann. Þetta og margt fleira í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Sádi-arabíska deildin er reiðubúið að losa sig við portúgalska framherjann Cristiano Ronaldo (41) fyrir 43 milljónir punda, en í augnablikinu er Manchester United ekki áhugasamt um að fá hann til félagsins í þriðja sinn. (The iPaper)
Chelsea ætlar að veita Tottenham samkeppni um serbneska framherjann Dusan Vlahovic (26), sem verður samningslaus í lok tímabils. (Football Insider)
Spænski miðvörðurinn Sergio Ramos (39) hefur boðist til þess að spila með Marseille í Frakklandi eftir að uppeldisfélag hans, Sevilla, hafnaði tækifærinu á að fá hann aftur. (Marca)
Fulham er komið aftur að samningaborðinu um bandaríska framherjann Riccardo Pepi (23), sem er á mála hjá PSV í Hollandi. (Teamtalk)
Chelsea er reiðubúið að leyfa Benoit Badiashile (24) að fara í sumar. AC Milan, Juventus og Marseille finnast náið með stöðu franska varnarmannsins. (CaughtOffside)
Manchester City ætlar að fá Elliot Anderson (23) frá Nottingham Forest, Michael Kayode (21) frá Brentford og Givairo Read (19), leikmann Feyenoord og U21 árs landsliðs Hollands í sumarglugganum. Þá er félagið vongott um að halda Pep Guardiola áfram sem stjóra liðsins. (The i Paper)
Arsenal ætlar að berjast við AC Milan um þýska miðjumanninn Leon Goretzka (31) eftir að Bayern München staðfesti að hann muni yfirgefa félagið í sumar þegar samningur hans rennur út. (Calciomercato)
Umboðsmaður ítalska miðjumannsins Sandro Tonali (25), sem var orðaður við enska toppliðið Arsenal undir lok janúargluggans, segir að það verði tekin ákvörðun um framtíð hans í sumar. (Tuttosport)
Newcastle er að fylgjast með stöðu Curtis Jones (25) hjá Liverpool, en félagið gæti reynt að fá hann ef Tonali mun fara í sumar. Aston Villa og Tottenham eru einnig að skoða enska miðjumanninn. (Teamtalk)
Napoli er enn áhugasamt um að fá Raheem Sterling (31) á frjálsri sölu, en mun aðeins reyna að fá hann ef hann lækkar launakröfur sínar. Samkvæmt erlendum miðlum vill hann fá 19 milljónir evra í árslaun. (Calciomercato)
Liverpool og Man Utd hafa skráð sig í baráttuna um Yan Diomande (19), leikmann Leibzig og Fílabeinsstrandarinnar. (Football Insider)
Chelsea ætlar að reyna að fá Samu Aghehowa (21), framherja Porto, í sumar, en Tottenham og Newcastle eru einnig með í baráttunni um spænska framherjann. (Teamtalk)
Athugasemdir


