Cristian Romero, fyrirliði Tottenham, hefur stolið fyrirsögnum ensku pressunnar síðustu vikuna og heldur sér áfram í sviðsljósinu en hann var rekinn af velli í fyrri hálfleik gegn Manchester United á Old Trafford í dag.
Romero hefur verið óhræddur við að gagnrýna stjórnendur Tottenham og er þá sagður ætla að yfirgefa félagið í sumar, en hann byrjaði og var með bandið gegn Man Utd í dag þrátt fyrir ummæli síðustu daga.
Sviðsljósið eltir Romero sem sá rauða spjaldið á 29. mínútu er hann fór í seina tæklingu á Casemiro. Hann taldi sig geta náð boltanum, en hæfði legginn á Casemiro og var sendur í sturtu.
Sjáðu rauða spjaldið hjá Romero
Viðburðarík vika hjá Argentínumanninum, en aðeins níu mínútum síðar skoraði Bryan Mbeumo fyrir United sem er á góðri leið með að ná í fjórða sigurinn í röð.
Sjáðu markið hjá Mbeumo
Athugasemdir



