08.02.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland í dag - Ísak spilar við Leipzig og stórleikur í München

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Tveir síðustu leikir helgarinnar fara fram í efstu deild þýska boltans í dag þar sem Ísak Bergmann Jóhannesson og félagar mæta RB Leipzig.
Köln er með 23 stig eftir 20 umferðir, aðeins fjórum stigum frá fallsvæðinu. Ísak hefur byrjað á varamannabekknum síðustu tvo leiki í röð en það þykir svo gott sem öruggt að hann mun koma við sögu ef hann byrjar ekki.
Leikurinn í dag verður afar erfiður þar sem gestirnir frá Leipzig eru í harðri baráttu um evrópusæti en hafa verið að misstíga sig að undanförnu.
Eftir að leiknum lýkur í Köln tekur topplið FC Bayern á móti sterku liði Hoffenheim og þarf á sigri að halda eftir vandræðagang síðustu vikna.
Þýskalandsmeistararnir eru búnir að misstíga sig í tveimur deildarleikjum í röð og eru aðeins með þriggja stiga forystu í titilbaráttunni, en þeir eiga leikinn í dag til góða.
Hoffenheim situr í þriðja sæti og er búið að sigra fimm leiki í röð. Níu stig skilja liðin að og má búast við afar spennandi slag.
Leikir dagsins
14:30 Köln - RB Leipzig
16:30 Bayern - Hoffenheim

Bundesliga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Bayern | 7 | +19 | 17 |
| 2 | Dortmund | 7 | +8 | 17 |
| 3 | Freiburg | 7 | +7 | 13 |
| 4 | Leverkusen | 7 | +4 | 13 |
| 5 | RB Leipzig | 7 | +9 | 12 |
| 6 | Werder | 7 | +1 | 12 |
| 7 | Mainz | 7 | +3 | 10 |
| 8 | Elversberg | 7 | -3 | 10 |
| 9 | Augsburg | 7 | +4 | 9 |
| 10 | Hoffenheim | 7 | 0 | 9 |
| 11 | Hamburger | 7 | -10 | 9 |
| 12 | Köln | 7 | -3 | 8 |
| 13 | Paderborn | 7 | -3 | 8 |
| 14 | Frankfurt | 7 | -7 | 8 |
| 15 | Stuttgart | 7 | -3 | 6 |
| 16 | Schalke 04 | 7 | -3 | 6 |
| 17 | Union Berlin | 7 | -12 | 6 |
| 18 | Gladbach | 7 | -11 | 3 |