Það er veisla í Bestu deild karla í dag þar sem fimm leikir eru á dagskrá. Sjötta umferðin klárast svo á sunnudag með leik KA og ÍBV á Akureyri.
Júlíus Mar Júlíusson, leikmaður Kristiansund í Noregi, spáir í leikina sem framundan eru.
Júlíus Mar Júlíusson, leikmaður Kristiansund í Noregi, spáir í leikina sem framundan eru.
Víkingur R. 2 - 0 Þór (17:30 í dag)
Erfiður leikur fyrir Þórsara sem hafa byrjað vel. Víkingar loka þessum leik og Jói Bjarna setur eitt.
Breiðablik 2 - 1 FH (19:15 í kvöld)
Hörkuleikur í Kópavogi. Adolf Daði kominn í markaskóna og kemur Hafnfirðingum yfir eftir glæsilegan samleik við Tómas Orra. Ágúst Orri verður reiður og skorar næsta mark og jafnar leikinn fyrir Blika. Gulldrengurinn úr Grafarvogi Jónatan Guðni kemur svo inn og klárar þetta fyrir Blika.
Fram 2 - 2 Valur (19:15 í kvöld)
Stál í stál dæmi. Nammi leikur á Lambhagavelli þar sem bæði lið sækja til sigurs. Ægir Jarl brýtur ísinn fyrir Framara en Ólafur Flóki jafnar leikinn með skalla. Adam Páls kemur síðan Völsurum yfir og heldur að hann sé búinn að tryggja þeim sigur en Íslenski Fadearinn (Arnar Daníel) er ekki á sama máli og jafnar leikinn með hjólhestaspyrnu í uppbótartíma og allt tryllist.
ÍA 3 - 0 Keflavík (19:15 í kvöld)
Skagamenn komnir á grasið þar sem þeim líður best og vinna þennan leik þægilega. Buccio eða Baldvin Þór opnar þetta með slummu af 40 metra færi , mark ársins komið í 6 umferð takk. Haukur Ás Haralds potar síðan inn einu áður en Rafael Máni klárar þetta með þriðja marki leiksins.
Stjarnan 2 - 3 KR (19:15 í kvöld)
Markaleikur í Garðabænum. BiddiOG byrjar á því að fitmogga menn í göngunum fyrir leik og setur síðan fyrstu tvö mörk leiksins eftir góðan undirbúning Jóhanns Árna. Aron Sig er búinn að losa sig við rauða frakkann og heldur uppteknum hætti og skorar eitt og leggur upp annað fyrir Amin Cosic. Stjörnumenn fá víti á 90 mínútu sem að The Dóz (Halldór Snær) grípur. Síðan pingar hann boltanum á Luke the nuke sem að klárar þetta með marki fyrir Vesturbæinga.
KA 1 - 0 ÍBV (16:30 á sunnudag)
Hans Viktor tekur enga fanga og sækir öll stigin þrjú. Hansi skorar eftir fast leikatriði og fagnar með því að rífa upp gítarinn því gítarinn er það eina sem hann áááá…
Fyrri spámenn:
Gísli Gotti (4 réttir)
Stefán Þór (3 réttir)
Ágúst Brynjars (3 réttir)
Siggi Raggi (3 réttir)
Siggi Hall (1 réttur)
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. KR | 5 | 5 | 0 | 0 | 22 - 9 | +13 | 15 |
| 2. Víkingur R. | 5 | 4 | 1 | 0 | 13 - 4 | +9 | 13 |
| 3. Breiðablik | 5 | 3 | 2 | 0 | 8 - 2 | +6 | 11 |
| 4. Fram | 5 | 3 | 1 | 1 | 15 - 9 | +6 | 10 |
| 5. Valur | 5 | 3 | 0 | 2 | 11 - 9 | +2 | 9 |
| 6. Stjarnan | 5 | 2 | 0 | 3 | 11 - 13 | -2 | 6 |
| 7. Þór | 5 | 2 | 0 | 3 | 5 - 11 | -6 | 6 |
| 8. ÍA | 5 | 1 | 2 | 2 | 6 - 10 | -4 | 5 |
| 9. KA | 5 | 1 | 1 | 3 | 5 - 8 | -3 | 4 |
| 10. Keflavík | 5 | 1 | 1 | 3 | 6 - 10 | -4 | 4 |
| 11. FH | 5 | 0 | 1 | 4 | 8 - 15 | -7 | 1 |
| 12. ÍBV | 5 | 0 | 1 | 4 | 6 - 16 | -10 | 1 |


