Fotbolti.net
09.07.26 - 19:20
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Borga rúmar 30 milljónir fyrir eftirsóttan miðjumann Udinese

Borga rúmar 30 milljónir fyrir eftirsóttan miðjumann Udinese
Canon

Mynd: EPA

Fiorentina er að gera frábæra hluti á leikmannamarkaðinum á upphafi sumars og er að krækja í Arthur Atta úr röðum Udinese eftir að hafa nælt sér í Radu Dragusin frá Tottenham.
Björn Már velur lið tímabilsins í ítalska boltanum
TENGT EFNI

Björn Már velur lið tímabilsins í ítalska boltanum

Fiorentina átti mikið vonbrigðatímabil á síðustu leiktíð og ætla stjórnendur ekki að leyfa því að koma fyrir aftur.

Félagið greiðir 30 milljónir evra fyrir Atta auk árangurstengdra aukagreiðslna og prósentu af endursöluvirði leikmannsins.

Atta er þessa stundina á leið til Flórens til að gangast undir læknisskoðun og hefur Fabrizio Romano sett „here we go!" stimpilinn sinn fræga á félagaskiptin.

Atta er 23 ára Frakki sem kom með beinum hætti að 10 mörkum í 34 leikjum með Udinese á síðustu leiktíð. Hann hefur verið orðaður við öll stærstu félög ítalska boltans ásamt því að hafa vakið athygli nokkurra félaga úr ensku úrvalsdeildinni.

Atta er fjölhæfur, sóknarþenkjandi miðjumaður sem lék 6 leiki fyrir U20 landslið Frakklands á sínum tíma. Sérfræðingurinn Björn Már Ólafsson valdi Atta í lið ársins úr Serie A.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Borga rúmar 30 milljónir fyrir eftirsóttan miðjumann Udinese
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.