Björn Már Ólafsson sérfræðingur um ítalska boltann hefur sett saman úrvalslið tímabilsins úr Serie A. Inter stóð uppi sem sigurvegari á liðnu tímabili og tók tvöfalt þar sem liðið vann einnig bikarmeistaraitilinn.
Mile Svilar (Roma)
Svilar er annað árið í röð markvörður ársins í Seríu A með 18 tandurhrein teyjulök í 38 leikjum. Frábær á marklínunni og einn á móti einum og mjög öflugur í fótunum. Síðan er hann orðinn enn betri í fyrirgjöfum.
Gianluca Mancini (Roma)
Gerpið sem enginn vill spila á móti en allir vilja hafa í sínu liði. Getur verið sveiflukenndur en steig sterkur upp undir lok tímabilsins þegar Roma vann sex leiki af sjö og tryggði sér Meistaradeildarsætið.
Leo Östigaard (Genoa)
Stórkostlegur skallamaður sem féll eins og flís við rass við hlutverkið sem hann fékk undir stjórn Daniele De Rossi. Stýrði vörninni eins og herforingi og skoraði 5 mörk eftir föst leikatriði. Slíkt er verðmætt í deild þar sem fá mörk voru skoruð á tímabilinu.
Tarik Muharemovic (Sassuolo)
Enn einn leikmaðurinn sem Juve Next Gen akademían býr til. Lék stórt hlutverk í að koma Sassuolo upp í efstu deild í fyrra og átti ekki í vandræðum með að aðlaga sig að efstu deild undir handleiðslu Fabio Grosso þjálfara liðsins. Aðeins 23ja ára gamall en með góðan leikskilning og mikla líkamlega burði sem gerir honum kleift að eiga við flesta framherja. Fer líklegast í stærra félag í sumar.
Federico Di Marco (Internazionale)
Besta vinstri löpp heims í dag? Þessi vinstri bakvörður endar tímabilið með hvorki meira né minna en fimm mörk og átján (já 18) stoðsendingar sem er tölfræði sem margir framherjar væru stoltir af. Ofan á það bætist að öll mörkin hans myndu sæma sér vel á Uffizi safninu í Flórens enda stórglæsileg.
Marco Palestra (Cagliari)
Ítalska orðið yfir líkamsræktarstöð er „Palestra“, og það vantar ekkert upp á líkamlega getu þessa hægri bakvarðar Cagliari sem lék þar á láni frá Atalanta í vetur. Hávaxinn og fljótur, frábær 1 á 1 sóknarlega á hægri kantinum og hann spilaði sig inn í ítalska landsliðið á tímabilinu aðeins 21 árs gamall. Hann verður afar eftirsóttur í sumar.
Scott McTominay (Napoli)
MVP deildarinnar í fyrra átti annað frábært tímabil í ár þótt Napoli hafi þurft að horfa á eftir titlinum til Mílanóborgar. Chippar inn með sín mörk með seinum hlaupum inn í teiginn.
Nico Paz (Como)
Það er sama hvað ég reyni, ég get ekki hætt að sjá Francesco Totti fyrir mér þegar ég horfi á Nico Paz. Útsjónarsemin, hægri fóturinn, vinstri fóturinn, gabbhreyfingarnar, hvernig hann býr sér til pláss þar sem ekkert pláss virðist vera að finna. Langskemmtilegasti leikmaðurinn að horfa á í deildinni og það væri synd að sjá hann fara aftur til Real Madrid núna þegar Como er komið í Meistaradeildina. Vonandi fær hann eitt tímabil í viðbót við stöðuvatnið góða og við fáum svo að sjá hann á HM í sumar, vonandi í stærra hlutverki en faðir hans Pablo Paz lék á HM 1998 er hann kom við sögu í einum leik.
Arthur Atta (Udinese)
Þessi ungi Frakki átti erfitt uppdráttar á sínu fyrsta tímabili hjá Udinese eftir komuna frá Metz en í vetur sló hann rækilega í gegn auk þess sem hann fann markaskóna undir lok tímabils. Stór og stæðilegur með mikla yfirferð var hann einn lykilmanna í sterku Udinese liði í ár og þeir Svarthvítu hafa sett háan verðmiða á hann í sumar.
Donyell Malen (Roma)
Ég á ekki í neinum vandræðum með að velja Malen í lið ársins þótt hann hafi komið til Roma í janúar enda búinn að vera sjóðheitur frá fyrsta leik og tryggði Roma Meistaradeildarsæti í fyrsta sinn í sjö ár. Stuðningsmenn Roma voru uggandi fyrir komu hans enda höfðu hinir tveir sóknarmennirnir sem liðið sótti úr Premier League þeir Leon Bailey og Evan Ferguson floppað feitt, en Malen er gerður úr einhverju allt öðru efni. Eldsnöggur og gríðarlega hreyfanlegur, fullkominn sem framherji í leikkerfi Gasperinis.
Lautaro Martínez (Internazionale)
Endar sem markakóngur deildarinnar með aðeins 17 mörk á tímabili þegar markaskorun í deildinni hefur verið sögulega lág (Donyell Malen endaði í öðru sæti með 14 mörk). Sem fyrirliði liðsins ber hann mesta ábyrgð á að hafa rifið liðið upp úr öldudalnum þegar liðið datt út gegn Bodö/Glimt í Meistaradeildinni og sótt titilinn nokkuð auðveldlega eftir að hafa áður verið í nokkuð harðri baráttu við Napoli. Gæðastjóri.
Varamenn:
Marco Carnesecchi (Atalanta)
Er orðinn varamarkvörður ítalska landsliðsins á eftir Donnarumma eftir frábærar frammistöður í ár. Hávaxinn, góður á línunni og úti í teignum og nægilega góður í fótunum fyrir nútíma knattspyrnu.
Wesley (Roma)
Kraftmikill vængbakvörður sem verður líklegast í byrjunarliði Brasilíu á HM í sumar.
Alessandro Bastoni (Internazionale)
Varð fyrir því áfalli að fá rauða spjaldið sem kostaði Ítali sæti á HM en lét það ekki á sig fá og kláraði tímabilið með stæl með Inter. Með vinstri löpp sem myndi nýtast hvaða sóknarmanni sem er.
Kenan Yildiz (Juventus)
Gerði nýjan samning við Juve á tímabilinu en tókst ekki að skjóta liðinu í Meistaradeildina.
Jesus Rodriguez (Como)
Ásamt Nico Paz mikilvægasti leikmaður Como á tímabilinu. Frábær í 1 á 1 stöðu sóknarlega.
Oumar Solet (Udinese)
Annað frábært tímabil hjá þessum sterka miðverði Udinese. Hóf ferilinn sem miðjumaður sem sést á því hversu auðveldlega hann getur spilað sig út úr vandræðum.
Manu Kone (Roma)
Einn besti miðjumaður deildarinnar þótt hann sé kannski einn versti skotmaður deildarinnar.
Armand Lauriente (Sassuolo)
Tímaspursmál hvernær þessi kantmaður fer í stærra félag.
Hakan Calanhoglu (Internazionale)
Stöðugasti leikmaður Inter á tímabilinu.
Ederson (Atalanta)
Atalanta var í brasi á tímabilinu en Ederson skilar alltaf sínu vinnuframlagi.
Lið ársins á síðasta tímabili:
27.05.2025 12:00
Björn Már velur lið ársins í ítölsku A-deildinni



