Forest reynir að kaupa eftirsóttan bakvörð

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Enska úrvalsdeildarfélagið Nottingham Forest lagði fram tæplega 20 milljón evru tilboð í hollenska bakvörðinn Givairo Read sem er samningsbundinn Feyenoord.

TENGT EFNI
Man City og Bayern fylgjast áfram með bakverði Feyenoord
Hollenska félagið var fljótt að hafna tilboðinu en Read hefur verið orðaður við stórveldi á borð við Manchester City og FC Bayern í sumar.
Forest er að undirbúa nýtt tilboð í Read en talið er að Feyenoord vilji um 30 til 40 milljónir fyrir ungstirnið sitt.
Read er 20 ára gamall og er hægri bakvörður að upplagi en getur einnig spilað vinstra megin. Hann er með þrjú ár eftir af samningi við Feyenoord og hefur verið lykilmaður upp yngri landslið Hollands.
Hann kom með beinum hætti að fimm mörkum í tuttugu leikjum á síðustu leiktíð sem einkenndist af meiðslavandræðum.
Feyenoord endaði í öðru sæti hollensku deildarinnar með 65 stig úr 34 umferðum, heilum 19 stigum á eftir toppliði PSV Eindhoven.