Fotbolti.net
09.07.26 - 13:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Guðmar Gauti í ÍA (Staðfest)

Mættur í gult.

Mættur í gult.

Canon

Mynd: ÍA

ÍA hefur krækt í miðjumanninn efnilega Guðmar Gauta Sævarsson en hann kemur frá uppeldisfélaginu Fylki. Hann var með lausan samning í haust en félögin náðu samkomulagi um félagaskipti og skiptir því Guðmar Gauti strax í ÍA.

Hann gengur formlega í raðir Skagamanna þegar félagaskiptaglugginn opnar 16. júlí.

Hann glímdi við meiðsli fyrr á þessu ári og hefur ekkert spilað með meistaraflokki Fylkis á tímabilinu.
Tryggvi Hrafn á leið í ÍA
TENGT EFNI

Tryggvi Hrafn á leið í ÍA

Tilkynning ÍA
Guðmar Gauti, er fæddur árið 2008 og hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað 39 leiki fyrir meistaraflokk Fylkis og skorað í þeim fimm mörk.

Hann á að baki 15 yngri landsleiki fyrir Ísland og hefur skorað í þeim þrjú mörk. Þá var hann einn af lykilmönnum U17 ára landsliðs Íslands sem tryggði sér sæti og spilaði á lokamóti árið 2025, þar sem frammistaða hans vakti verðskuldaða athygli erlendra félaga.

Það eru afar ánægjuleg tíðindi fyrir ÍA að Guðmar Gauti hafi valið Akranes sem næsta áfangastað á sínum ferli. Við hlökkum til að taka á móti Guðmari Gauta og styðja við áframhaldandi þróun hans á komandi árum.

Velkominn á Skagann, Guðmar Gauti!

Guðmar Gauti og Ingimar Elí sem er framkvæmdastjóri KFÍA.

Guðmar Gauti og Ingimar Elí sem er framkvæmdastjóri KFÍA.

Canon

Mynd: ÍA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.