09.08.26 - 17:14
Helgi Inguson
Byrjunarlið Víkings og ÍBV: Lykilmenn í leikbanni - Sex breytingar frá skellinum í Sviss

Oliver Ekroth tekur út leikbann í dag eftir að hafa fengið rautt spjald gegn ÍA í síðustu umferð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hrannar Snær byrjar á bekknum

Mynd: Víkingur

Víkingur tekur á móti ÍBV í 18. umferð Bestu deildar karla á Víkingsvellinum klukkan 18:00 í dag.
Víkingur kemur inn í leikinn eftir þungt 3-0 tap úti gegn svissnesku meisturunum Thun. Það var fyrri leikur liðanna í forkeppni Evrópudeildarinnar. ÍBV tapaði 1-2 gegn Fram í Þjóðhátíðarleiknum um síðustu helgi.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 2 ÍBV
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, gerir sex breytingar á sínu liði frá leiknum í Sviss.
Þeir Viktor Örlygur Andrason, Róbert Orri Þorkelsson, Daði Berg Jónsson, Davíð Örn Atlason, Valdimar Þór Ingimundarson og Ármann Ingi Finnbogason koma inn í liðið.
Þeir Sveinn Gísli Þorkelsson, Aron Elís Þrándarson, Karl Friðleifur Gunnarsson og Stígur Diljan Þórðarson taka sér sæti á bekknum. Daníel Hafsteinsson er þá utan hóps ásamt Oliver Ekroth sem fékk rautt spjald í síðasta deildarleik gegn ÍA og er því í leikbanni í dag.
Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, gerir fjórar breytingar á sínu liði frá leiknum gegn Fram.
Omar Sowe kemur inn í liðið eftir að hafa tekið út tveggja leikja leikbann. Sesar Örn Harðarson, Eiður Atli Rúnarsson og Róbert Elís Hlynsson koma þá líka inn í liðið.
Þá taka Bjarki Björn Gunnarsson og Felix Örn Friðriksson út leikbann í dag vegna uppsafnaðra gulra spjalda. Halldór Jón Sigurður Þórðarson tekur sér sæti á bekknum og Hermann Þór Ragnarsson er utan hóps.

Byrjunarlið Víkingur R.
- 29. Aron Snær Friðriksson (m)
- 6. Gunnar Vatnhamar
- 8. Viktor Örlygur Andrason
- 9. Helgi Guðjónsson
- 10. Gylfi Þór Sigurðsson
- 15. Róbert Orri Þorkelsson
- 18. Daði Berg Jónsson
- 24. Davíð Örn Atlason
- 25. Valdimar Þór Ingimundarson
- 30. Sveinn Margeir Hauksson
- 69. Ármann Ingi Finnbogason
Byrjunarlið ÍBV
- 33. Ari i Haraldstovu Petersen (m)
- 2. Sigurður Arnar Magnússon
- 4. Mattias Edeland
- 6. Milan Tomic
- 7. Sesar Örn Harðarson
- 22. Eiður Atli Rúnarsson
- 23. Arnór Ingi Kristinsson
- 25. Alex Freyr Hilmarsson (f)
- 27. Róbert Elís Hlynsson
- 30. Vicente Rafael Valor Martínez
- 67. Omar Sowe

Hrannar Snær byrjar á bekknum

Mynd: Víkingur