Fotbolti.net
09.08.26 - 12:42
Brynjar Ingi Erluson

Man Utd í viðræðum við Leicester

Man Utd í viðræðum við Leicester
Canon

Mynd: Leicester City

Manchester United er í viðræðum enska C-deildarfélagið Leicester City um hinn 18 ára gamla Louis Page. Þetta kemur fram á BBC í dag.
Page er miðjumaður sem var valinn lærlingur ársins hjá EFL á síðasta tímabili.

Hann er talinn einn mest spennandi ungi leikmaðurinn utan ensku úrvalsdeildarinnar. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann þegar leikið 21 leik með aðalliði Leicester og er jafnframt hluti af U20 ára landsliði Englands.

BBC hefur heimildir fyrir því að Manchester United eigi í viðræðum við Leicester um Page, en Arsenal og Aston Villa hafa einnig sýnt honum áhuga.

Leicester missti hinn 17 ára gamla Jeremy Monga til Manchester City í síðasta mánuði og gæti nú séð á eftir öðru stórefni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.