09.08.26 - 11:54
Brynjar Ingi Erluson
Rashford áfram hjá Man Utd?

Marcus Rashford

Mynd: EPA

Rashford og Carrick spiluðu saman hjá United

Mynd: EPA

Marcus Rashford

Mynd: EPA
Enski landsliðsmaðurinn Marcus Rashford sneri aftur til æfinga hjá Manchester United í morgun eftir lánsdvölina hjá Barcelona. Raunhæfur möguleiki er á að hann verði áfram á Old Trafford.
Rashford hefur eytt síðustu vikum í fríi eftir að hafa leikið með Englandi á heimsmeistaramótinu í sumar.
Hann er með tilboð frá félögum í Sádi-Arabíu og Tyrklandi en hefur ekki áhuga á að fara þangað eins og staðan er núna.
Fabrizio Romano segir enn góðar líkur á að Rashford verði áfram hjá Manchester United. Hann sneri aftur á Carrington-æfingasvæðið í morgun og hóf æfingar með liðinu.
„Ég lék með honum og var í liðinu þegar hann þreytti frumraun sína þannig að við eigum sögu saman. Við fljúgum beint til Dyflinnar og verðum þar í nokkra daga með allan leikmannahópinn.“
„Marcus verður með, rétt eins og Kobbie (Mainoo) og Lisandro (Martínez). Við getum ekki beðið eftir að fá þá aftur,“ sagði Michael Carrick, stjóri United, eftir 1-1 jafnteflið gegn Paris Saint-Germain í gær.
Rashford er 28 ára gamall og uppalinn hjá United. Hann á 138 mörk í 426 leikjum fyrir liðið yfir tíu tímabil, en ekki spilað fyrir félagið síðan í desember fyrir tveimur árum.
Sóknarmaðurinn fór á láni til Aston Villa í byrjun árs 2025 og lék síðan með Barcelona á láni á síðustu leiktíð. Hann gerði góða hluti á Spáni en Börsungar ákváðu að kaupa hann ekki.