Fotbolti.net
Spáin fyrir enska - 14. sæti

09.08.26

Spáin fyrir enska - 14. sæti

GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON

Við höldum áfram að kynna liðin í ensku úrvalsdeildinni út frá sérstakri spá fréttamanna Fótbolta.net. Í 14. sæti í þessari spá er Leeds United sem er félag sem á stóran aðdáendahóp hér á Íslandi.
Hvernig kom Leeds „bakterían" til Íslands?
TENGT EFNI

Hvernig kom Leeds „bakterían" til Íslands?



Leeds United virðist loksins vera komið á stöðugri braut eftir mörg erfið ár. Félagið tryggði sér áframhaldandi sæti í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og horfir nú bjartsýnt fram á veginn. Framkvæmdir við stækkun Elland Road eru hafnar, fjárhagsstaðan er sterk undir stjórn 49ers Enterprises og fyrirliðinn Ethan Ampadu skrifaði undir nýjan langtímasamning í sumar. Það ríkir því mun meiri ró í kringum félagið en oft áður.

Markmiðið fyrir annað tímabil eftir endurkomuna í deildina er þó einfalt: Að halda sér áfram í deildinni. Saga ensku úrvalsdeildarinnar hefur margsinnis sýnt að svokallað „annað tímabils heilkenni“ getur reynst nýliðum erfitt þegar væntingarnar aukast og andstæðingarnir þekkja liðin betur. Leeds þarf því að forðast að falla í þá gryfju.

Félagið hefur hins vegar byggt upp sterkan grunn. Félagaskiptin síðasta sumar heppnuðust afar vel og leikmenn á borð við Noah Okafor, Anton Stach og Dominic Calvert-Lewin áttu stóran þátt í góðu tímabili. Nú þarf Leeds að hitta jafn vel í mark á félagaskiptamarkaðnum á ný ef liðið ætlar sér að festa sig í sessi í efri hluta deildarinnar á næstu árum.
Spáin fyrir enska - 14. sæti

Mynd: EPA

Stjórinn: Daniel Farke hefur þaggað niður í mörgum efasemdarröddum. Þjóðverjinn hafði áður tvisvar fallið úr ensku úrvalsdeildinni með Norwich og margir efuðust um að hann gæti haldið liði uppi. Á síðasta tímabili sneri hann þeirri umræðu við með því að tryggja Leeds örugga veru í deildinni og leggja góðan grunn. Farke hefur skapað skýra leikstefnu hjá félaginu og nýtur núna mikils trausts hjá stuðningsmönnum á Elland Road. Nú vill hann að Leeds láti ekki staðar numið, heldur haldi áfram að byggja upp lið sem getur fest sig í sessi í efri hluta ensku úrvalsdeildarinnar.

Leikmannaglugginn: Leeds hefur sótt tvo mjög áhugaverða leikmenn í sumar sem munu styrkja liðið heilmikið, en gætu fleiri verið á leiðinni?

Komnir:
James Trafford frá Manchester City - 40 milljónir punda
Tarik Muharemovic frá Sassuolo - 34,1 milljón punda
Harry Wilson frá Fulham - Á frjálsri sölu

Farnir:
Pascal Struijk til Brighton - 18 milljónir punda
Isaac Schmidt til Young Boys - 1,1 milljón punda
Jack Harrison til New England Revolution - Óuppgefið kaupverð
Maximilian Wöber til Schalke - Á frjálsri sölu
Karl Darlow til Manchester United - Á frjálsri sölu
Illan Meslier til Arsenal - Á frjálsri sölu
Spáin fyrir enska - 14. sæti

Mynd: EPA

Líklegt byrjunarlið
Mynd: FotMob


Lykilmaður: Ethan Ampadu
Ampadu er leiðtoginn sem Leeds byggir lið sitt í kringum. Fyrirliðinn og velski landsliðsmaðurinn hefur fest sig í sessi sem einn mikilvægasti leikmaður félagsins með óbilandi baráttuanda, yfirvegun og getu til að leiða liðið bæði innan vallar og utan. Ampadu er óhræddur við að fórna sér fyrir liðið, vinnur ótrúlega mikið varnarlega og setur tóninn með kraftmiklum tæklingum og mikilli vinnusemi. Hann er í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Leeds.

Gaman að fylgjast með: Tarik Muharemovic
Bosníski miðvörðurinn gekk til liðs við Leeds frá Sassuolo í sumar eftir að hafa slegið í gegn í ítölsku A-deildinni og unnið sér jafnframt sæti í landsliði Bosníu og Hersegóvínu fyrir HM 2026. Leeds bindur miklar vonir við hinn 23 ára gamla varnarmann og samdi við hann til fimm ára. Hann var áður á mála hjá Juventus og stuðningsmenn ítalska risans vildu fá hann aftur, en hann ákvað að fara til Leeds.

Besta og versta mögulega niðurstaða: Stuðningsmönnum Leeds dreymir um að fá Evrópukvöld aftur á Elland Road og ef allt gengur upp er það ekki galin pæling. Ef allt fer hins vegar á versta veg þá gæti Leeds fallið úr deildinni. Það er stutt á milli í þessu.
Spáin fyrir enska - 14. sæti

Mynd: Leeds

Þau sem spáðu: Arngrímur Alex Birgisson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Hafþór Örn Laursen, Haraldur Örn Haraldsson, Ívar Björgvinsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Mate Dalmay, Snæbjört Pálsdóttir, Stefán Marteinn Ólafsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.

Liðin fengu eitt stig og upp í 20 eftir það hvar hver og einn spáði þeim. Liðið í síðasta sæti fékk eitt stig, liðið í 19. sæti tvö stig og koll af kolli. Stigin í spánni tengjast á engan hátt stigafjölda liðanna í deildinni.
.

Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ?
11. ?
12. ?
13. ?
14. Leeds United, 95 stig
15. Fulham, 90 stig
16. Nottingham Forest, 85 stig
17. Sunderland, 78 stig
18. Coventry City, 42 stig
19. Ipswich Town, 32 stig
20. Hull City, 14 stig
Spáin fyrir enska - 14. sæti

Mynd: EPA

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.