„Það er kannski bara fínt að fá stórt lið og reyna að sýna þjóðinni að við erum ekkert búnir sem lið," segir Emil Hallfreðsson um komandi vináttulandsleik gegn Frakklandi.
Frakkland og Ísland eigast við á fimmtudagskvöld í Guingamp en síðasti landsleikjagluggi var slæmur fyrir strákana okkar, leikirnir tveir töpuðust samtals 0-9.
Frakkland og Ísland eigast við á fimmtudagskvöld í Guingamp en síðasti landsleikjagluggi var slæmur fyrir strákana okkar, leikirnir tveir töpuðust samtals 0-9.
„Það hefur verið neikvæð umræða, sem er kannski að einhverju leyti eðlilegt. Talað er um að við séum búnir á því, þetta verði erfitt og blablabla. Vonandi getum við þaggað niður í ákveðnu liði."
Emil var þá spurður nánar út í það hvaða lið hann væri að tala um?
„Þeir sem eru með þessar raddir. Maður heyrir þær hér og þar, og les um þetta. Talað er um kaflaskipti og eitthvað en ég held að við eigum ekkert að hlusta á það. Við vitum alveg að við erum gott lið, undankeppni EM er ekki einu sinni byrjuð. Ég hef enn fulla trú á þessu liði og við ætlum að komast á EM."
Rætt hefur verið um dræma miðasölu á Þjóðadeildarleikinn gegn Sviss sem verður á mánudaginn.
„Það verður bara leiðinlegt fyrir fólk sem ætlar ekki að mæta! Auðvitað væri frábært að hafa fullan völl. Ef við tökum góðan leik gegn Frökkum gæti vel verið að miðasalan hækki upp í kjölfarið," segir Emil.
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan en þar tjáir Emil sig einnig um stöðuna hjá Frosinone, félagsliði hans á Ítalíu, sem er í fallsæti með aðeins eitt stig.
Athugasemdir