Fotbolti.net
15.07.26 - 14:31
Elvar Geir Magnússon

Besti vinur Messi

Lionel Messi og Rodrigo de Paul.

Lionel Messi og Rodrigo de Paul.

Canon

Mynd: EPA

Lionel Messi hefur myndað sterk vinasambönd með nokkrum af liðsfélögum sínum í gegnum tíðina, hann og markvörðurinn Jose Manuel Pinto urðu nánir vinir hjá Barcelona og flestir þekkja öflugt vinasamband Messi og Luis Suarez.

Af núverandi liðsfélögum hans í Argentínu er Rodrigo de Paul hans besti vinur en þeir urðu vinir í gegnum landsliðsverkefni.
Íþróttablaðamaðurinn Guillem Balague segir frá því hvernig De Paul bankaði á herbergisdyr Messi eftir að hafa séð hann yfirgefa æfingu einan. Hann spurði Messi hvort hann væri ekki til í að fá sér 'mate' (Suður-amerískt te) og taka í spil.

Það var upphafið að vináttu sem varð gríðarlega sterk. Þegar þeir eru saman í landsliðsverkefni byrjar Messi daginn á því að heimsækja herbergi De Paul og þeir drekka saman 'mate'.

„De Paul kemur fram við hann eins og venjulegan mann fremur en goðsögn. Því að það er í raun það sem Messi vill oftast: vera Leo, ekki Messi. De Paul þekkir hann líka nógu vel til að skynja hvenær best er að láta hann í friði," segir Balague.

Þeir ganga alltaf saman hlið við hlið inn á æfingasvæðið. Oftast er Messi fremstur með De Paul við hlið sér og aðra leikmenn fyrir aftan.

Í fyrrasumar urðu þeir liðsfélagar einnig hjá Inter Miami þegar De Paul gekk í raðir bandaríska félagsins.
Besti vinur Messi
Canon

Mynd: EPA

Besti vinur Messi
Canon

Mynd: EPA

Besti vinur Messi
Canon

Mynd: EPA

Besti vinur Messi
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.