Fotbolti.net
14.07.26 - 21:30
Sverrir Örn Einarsson

Sölvi með gæsahúð: Svo stoltur sem þjálfari

Auglýsing
Sölvi Geir Ottesen

Sölvi Geir Ottesen

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eftir mikið japl, jaml og fuður tókst Maté Dalmay fulltrúa Fótbolta.net í Györ loksins að fá Sölva Geir Ottesen þjálfara Víkinga í viðtal eftir 2-2 jafntefli Víkinga sem tryggði þeim framhald í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Ungverjarnir voru skiljanlega ekki sáttir við úrslit leiksins og reyndust ekki um of hjálpsamir Maté sem þó tókst á endanum að hafa uppi á Sölva sem skiljanlega var nokkuð léttur.
Lestu um leikinn: ETO Györ 2 - 2 Víkingur R.
„Ég er bara geggjaður, raddlaus en bara vá. Þvílíkur sigur í þessu einvígi. Þvílíkur karakter sem strákarnir sýndu eftir mjög slakan fyrri hálfleik þar sem við náðum aldrei að tengja saman sendingar. Þurftum að elta boltann allan fyrri hálfleikinn. Hvernig við náðum að núllstilla okkur og vera betri aðilinn ef eitthvað er.“

„Markið sem við skoruðum í seinni hálfleik frábært af okkar hálfu. Trúin, það er svo auðvelt oft þegar þú lendir í mótlæti að missa trúna og vera svekktur. Við töluðum um þetta, fundum lausn í seinni hálfleik og hvernig við komum út þá er ég svo stoltur sem þjálfari. Sjá hvernig þeir gefast ekki upp, trúa allan tímann, ég fæ bara gæsahúð.“

Sagði Sölvi um sína líðan eftir leik undir dynjandi fagnaðarlátum leikmanna Víkings úr klefanum sem yfirgnæfa viðtalið á þessum tímapunkti sem urðu til þess að Maté fékk Sölva til að færa sig um set svo þeir gætu rætt saman.

Sölvi nýtti allar sínar skiptingar í leiknum og gerði meðal annars tvöfalda skiptingu á 77.mínútu leiksins og tók þar Daníel Hafsteinsson og Karl Friðleif Gunnarsson af velli sem verið hafa máttarstólpar í liði Víkinga. Voru menn bara búnir á því?

„Nei nei, bara að fá orku inná. Þetta var rosalega erfiður leikur í miklum hita og á grasi. Menn voru bara búnir að leggja gjörsamlega allt á línuna. Valdimar í lokin og bara sorry ég er búinn á því og það er bara það eina sem ég get beðið leikmenn mína um. Að leggja sig 100% fram og klára sig. Síðan erum við bara með sterka leikmenn á bekknum sem geta komið inn á og siglt þessu í höfn fyrir okkur.“

Blaðamenn ungversku pressunar voru ekki hrifnir af háum boltum heimamanna inn á teig Víkinga sem varnarmenn þeirra réðu vel við. Sölvi ræddi fyrir leikinn að Víkingar væri alveg klárir í að "suffera" í kvöld. En varð það raunin?

„Þeir gerðu það frábærlega, varnarlínan sá um að skalla alla bolta í burtu. Algjörir yfirburðir og þá sérstaklega hjá hafsentum okkar, bakverðirnir og Tarik líka. Síðan er líka miðjumennirnir sem eru klárir í að éta upp dauðu boltanna. Menn lögðu allt í þetta og maður er svo stoltur.“

Sölvi bætti svo við.

„Mig langar að tileinka Ingvari Jónssyni þennan sigur. Hann er í massívri baráttu sjálfur og það minnsta sem við getum gert er að spila einhvern fótboltaleik og barist þar. Mig langar því að tileinka Ingvari góðum vini mínum þennan sigur.“

Markverðir Víkinga hafa lent í skakkaföllum í sumar. Vekindi herja á Ingvar Jónsson, Aron Snær Friðriksson meiddist á dögunum og verður frá í einhverjar vikur og í kvöld lenti Ögmundur Kristinsson í samstuði sem leit ekki vel út við fyrstu sýn. Fór um Sölva á því augnabliki?

„Nei í raunni ekki. Ég veit ekki hvort ég sé bara þannig þenkjandi eða hvað. Ef Ömmi er meiddur þá get ég ekkert gert og þá þyrfti Uggi bara að koma inn. Ég talaði við hann og reyndi bara að peppa hann upp. Við lifum í núinu og notum það sem við getum notað. “

Sagði Sölvi en allt viðtalið við hann má sjá hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.