Fotbolti.net
09.10.26 - 14:24
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

HK hafnaði tilboði FH í Karl Ágúst

HK hafnaði tilboði FH í Karl Ágúst
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH lagði fram tilboð í Karl Ágúst Karlsson en HK hafnaði tilboðinu. Við sögðum frá tilboðinu í risastóra slúðurpakkanum sem birtur var í gær og Fótbolti.net hefur fengið staðfest að tilboði FH var hafnað.

FH-ingar gera sér vonir um að geta náð samkomulagi við HK en tíminn mun leiða í ljós hvort það náist.
Risastóri íslenski slúðurpakkinn - Stór nöfn á faraldsfæti
TENGT EFNI

Risastóri íslenski slúðurpakkinn - Stór nöfn á faraldsfæti

Karl Ágúst er fæddur 2007 er uppalinn hjá HK og er samningsbundinn félaginu út 2028.

Hann á að baki 20 leiki fyrir yngri landsliðin og hefur í þeim skorað tvö mörk.

Hann skoraði sex mörk í nítján leikjum í Lengjudeildinni í sumar og lagði samkvæmt Sofascore upp þrjú mörk.

Í slúðurpakkanum var hann einnig orðaður við ÍA.
HK hafnaði tilboði FH í Karl Ágúst
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.