Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
   fös 10. júlí 2020 12:00
Magnús Már Einarsson
Egill Ploder spáir í leiki helgarinnar á Englandi
Egill Ploder í leik með Kríu í 4. deildinni.
Egill Ploder í leik með Kríu í 4. deildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Bjarni Þór Viðarsson var með sex rétta þegar hann spáði í síðustu umferð í ensku úrvalsdeildinni.

Egill Ploder, útvarpsmaður á FM 957, spáir í leikina sem fara fram um helgina.



Watford 1 - 0 Newcastle (11:30 á morgun)
Þetta verður einn boring leikur - Það verður 0-0 fram á 80 mínutu og þá nær Watford að láta eitt leka inn í fyrsta marktækifæri leiksins og tryggja sér mikilvæg 3 stig í botnbaráttunni. 1-0.

Norwich 0 - 2 West Ham (11:30 á morgun)
West Ham nær sínum fyrsta sigri hérna í rosalega langan tíma. 0-2.

Liverpool 4 - 1 Burnley (14:00 á morgun)
Þægilegur 4-1 sigur hjá mínum mönnum. Núna er þetta spurning um að bæta stigametið. Mané hendir í þrennu og óvænt mark frá Andy Robertsson. Jói Berg skorar fyrir Burnley.

Sheffield Utd 3 - 2 Chelsea (16:30 á morgun)
Þetta verður skemmtilegur leikur! Held að Sheffield komi á óvart hérna og taki Chelsea 3-2.

Brighton 0 - 4 Man City (19:00 á morgun)
City er á eldi og pakka þessu saman. Setjum 0-4 á þennan leik með 2 mörk frá Sterling og 2 frá Jesus.

Wolves 3 - 2 Everton (11:00 á sunnudag)
Gylfi hrekkur almennilega í gang í þessari umferð og skorar 2 aukaspyrnumörk og eitt af þeim verður mark tímabilsins. Því miður dugar það ekki Everton því Wolves skora þrjú. 3-2.

Aston Villa 0 - 1 Crystal Palace (13:15 á sunnudag)
Mikið undir fyrir Aston Villa. Þeir hafa einfaldlega ekki verið nógu góðir fyrir ensku úrvalsdeildina og það breytist lítið í þessum leik og Crystal Palace vinnur 0-1 í tíðindalitlum leik.

Tottenham 1 - 1 Arsenal (15:30 á sunnudag)
Ég hef tvisvar farið á þessa rimmu í deildinni, reyndar í bæði skiptin á Emirates og báðir þeir leikir hafa endað með 1-1 jafntefli. Það breytist ekkert. Tvö framherjamörk. Lucas Moura fyrir Tottenham og Auba fyrir Arsenal.

Bournemouth 1 - 2 Leicester (18:00 á sunnudag)
Þetta er mjög athyglisverður leikur. Rosalega mikið undir fyrir bæði lið. Bournemouth í botnbaráttunni og Leicester þarf nauðsynlega á sigri að halda fyrir meistaradeildarsætið. Líklega ekkert óvænt sem gerist þarna. Leicester tekur þetta 1-2.

Man Utd 3 - 1 Southampton (19:00 á mánudag)
Man Utd er að fara að vinna alla leiki sem þeir eiga eftir á þessum tímabili ef þeir halda áfram að spila eins og þeir hafa verið að gera í síðustu leikjum. Taka þennan leik 3-1.

Sjá fyrri spámenn:
Aron Einar Gunnarsson (7 réttir)
Auðunn Blöndal (7 réttir)
Bjarki Már Elísson (7 réttir)
Gunnar Sigurðarson (7 réttir)
Sigurður Hrannar Björnsson (7 réttir)
Arnþór Ingi Kristinsson 6 réttir)
Bjarni Þór Viðarsson (6 réttir)
Kristján Óli Sigurðsson (6 réttir)
Pálmi Rafn Pálmason (6 réttir)
Egill Gillz Einarsson (5 réttir)
Jón Dagur Þorsteinsson (5 réttir)
Sigvaldi Guðjónsson (5 réttir)
Sóli Hólm (5 réttir)
Stefán Árni Pálsson (5 réttir)
Björn Hlynur Haraldsson (4 réttir)
Albert Brynjar Ingason (4 réttir)
Arnór Sigurðsson (4 réttir)
Ágúst Gylfason (4 réttir)
Friðrik Dór Jónsson (4 réttir)
Logi Bergmann Eiðsson (4 réttir)
Sigurður Egill Lárusson (4 réttir)
Þórður Ingason (4 réttir)
Sigurður Laufdal Haraldsson (3 réttir)
Guðmundur Benediktsson (3 réttir)
Ingibjörg Sigurðardóttir (3 réttir)
Stefán Jakobsson (3 réttir)
Sveinn Ólafur Gunnarsson (3 réttir)
Árni Vilhjálmsson (2 réttir)
Gunnar Birgisson (2 réttir)
Tómas Þór Þórðarson (2 réttir)
Vilhjálmur Freyr Hallsson (2 réttir)
Óttar Bjarni Guðmundsson (1 réttur)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner