Fotbolti.net
11.07.26 - 10:00
Ívan Guðjón Baldursson

Tzolis á að taka við af Trossard

Tzolis á að taka við af Trossard
Canon

Mynd: EPA

Arsenal er nálægt því að ganga frá samkomulagi við belgíska stórveldið Club Brugge um kaup á kantmanninum Christos Tzolis.
Arsenal skoðar að kaupa góðvin Ísaks
TENGT EFNI

Arsenal skoðar að kaupa góðvin Ísaks

Tzolis er 24 ára gamall og kom með beinum hætti að 51 marki í 52 leikjum með Club Brugge á síðustu leiktíð.

Tzolis er lykilmaður í landsliði Grikklands og á að taka stöðu Leandro Trossard í leikmannahópi Arsenal.

Trossard er 31 árs gamall og með eitt ár eftir af samningi. Besiktas hefur mikinn áhuga á að kaupa hann í sumar en óljóst er hvort leikmaðurinn vilji yfirgefa Arsenal áður en samningurinn rennur út.

Tzolis hefur áður leikið fyrir Norwich í Championship deildinni en stóðst ekki væntingar áður en hann sprakk út á láni hjá Fortuna Düsseldorf í næstefstu deild í Þýskalandi, sem nýtti kaupákvæðið í lánssamningnum.

Til gamans má geta að Ísak Bergmann Jóhannesson var samherji Tzolis hjá Dusseldorf tímabilið 2023-24.

Belgarnir vilja fá 35 milljónir punda fyrir kantmanninn sinn.
Tzolis á að taka við af Trossard
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.