Fotbolti.net
12.06.25 - 11:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Sane lentur í Istanbúl - Fær svakaleg laun

Leroy Sane.

Leroy Sane.

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Þýski kantmaðurinn Leroy Sane fékk góðar móttökur í Istanbúl þegar hann lenti þar í morgun. Hann er að ganga frá skiptum sínum til Galatasaray.

Sane hefur verið í viðræðum við Bayern München um nýjan samning en þær hafa ekki gengið upp. Samningur hans rennur út núna um mánaðarmótin.
Arsenal og Tottenham var einnig boðið að fá Sane en núna nýverið blandaði Al-Hilal frá Sádi-Arabíu sér í baráttuna en Galatasaray var það félag sem lagði mest á sig að fá kantmanninn.

Sane mun skrifa undir þriggja ára samning hjá Galatasaray og fá um 475 þúsund pund í vikulaun. Þessi laun munu koma honum í hóp launahæstu fótboltamanna heims. Um er að ræða talsvert hærri laun en hann var með hjá Bayern.

Galatasaray er að missa sinn besta mann, Victor Osimhen, og mun Sane koma í hans stað sem stærsta stjarna liðsins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.