Fotbolti.net
12.10.26 - 11:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Annað Akureyrarliðið mun falla - „KA á auðveldara prógramm eftir"

KA dugir fjögur stig úr síðustu tveimur leikjunum.

KA dugir fjögur stig úr síðustu tveimur leikjunum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ljóst varð á laugardag að ÍBV er fallið úr Bestu deildinni. Ljóst er að annað hvort KA eða Þór mun fylgja Eyjamönnum niður í Lengjudeildina en KA er með tveggja stiga forskot á grannanna fyrir síðustu tvær umferðirnar.

KA vann öruggan 0-3 útisigur á Stjörnunni á laugardag og á sama tíma vann Þór 1-0 heimasigur á ÍBV, sem felldi Eyjamenn.
Siggi Höskulds: Eitt af því besta sem við höfum sýnt
TENGT EFNI

Siggi Höskulds: Eitt af því besta sem við höfum sýnt

Ofan á stigin tvö sem KA er með í forskot er liðið með miklu betri markatölu en hitt Akureyrarliðið. KA er með 26 stig og mínus 10 í markatölu á meðan Þór er með 24 stig og mínus 33 í markatölu.

KA á eftir útileik gegn Val og svo heimaleik gegn föllnum Eyjamönnum í lokaumferðinni.

Þór á eftir heimaleik gegn Stjörnunni í næsta leik og endar svo gegn FH á útivelli í lokaumferðinni.

„Ef maður horfir á síðustu tvo leikina sem liðin eiga eftir þá á KA auðveldara prógramm eftir. KA á Val og fallna Eyjamenn. Þórsarar eiga Stjörnumenn, sem eru reyndar gefins þrjú stig ef liðið mætir eins til leiks og gegn KA, og síðan eiga Þórsarar FH í lokaumferðinni á Kaplakrikavelli. FH-ingar eru ólseigir," segir Kári Snorrason í Innkastinu.

„Maður er að halda í einhver hálmstrá varðandi spennu í þessari deild og það er svolítið skemmtilegt, kannski ljótt að segja það því maður óskar engum falli, að það séu bæði Akureyrarliðin að berjast. Þetta er hálmstrá sem ég á auðvelt með að halda í," segir Valur Gunnarsson. Hægt er að hlusta á Innkastið hér að neðan.

Leikirnir sem eftir eru hjá KA og Þór
laugardagur 17. október
Besta karla - Neðri hluti
14:00 Þór-Stjarnan (VÍS völlurinn)
14:00 Valur-KA (N1-völlurinn Hlíðarenda)

laugardagur 24. október
Besta karla - Neðri hluti
14:00 FH-Þór (Kaplakrikavöllur)
14:00 KA-ÍBV (Greifavöllurinn)
Þór verður líklega að vinna báða sína leiki til að eiga möguleika á að halda sæti sínu.

Þór verður líklega að vinna báða sína leiki til að eiga möguleika á að halda sæti sínu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hvort Akureyrarliðið fylgir ÍBV niður?

Hvort Akureyrarliðið fylgir ÍBV niður?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - Hvaða félög taka þátt í þjálfarakaplinum?

Besta karla - Neðri hluti

#LiðLmunStig
1Valur25-531
2Stjarnan25-1231
3FH25-430
4KA25-1026
5Þór25-3324
6ÍBV25-1619
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.