Fotbolti.net
10.10.26 - 17:15
Sverrir Örn Einarsson

Siggi Höskulds: Eitt af því besta sem við höfum sýnt

Auglýsing
Siggi Höskulds

Siggi Höskulds

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs var til viðtals við Fótbolta.net eftir lífsnauðsynlegan 1-0 sigur Þórs á ÍBV norðan heiða fyrr í dag. Sigurinn sem fyrr segir lífsnauðsynlegur fyrir Þór sem eygir enn möguleika á að halda sæti sínu í deildinni en þarf á því að halda að grannar þeirra í KA misstígi sig svo að það megi verða.
„Himinlifandi með þessa frammistöðu, himinlifandi með úrslitin. Lögðum grunninn að þessu í fyrri hálfleik þar sem við vorum frábærir . Eitt af því besta sem við höfum sýnt, varnarleikurinn, pressan, allt upp á tíu og mér fannst þeir varla eiga upphlaup á okkur. Seinni hálfleikurinn var aðeins erfiðari en við áttum að vera búnir að klára þetta í fyrri hálfleik. Svo fáum við tvö bestu færi seinni háfleiks og bara svekkjandi að hafa ekki unnið þetta stærra.“

Varnarleikur Þórs hélt leikinn á enda og átti varnarlínan sem heild mjög góðan dag. En hvað var það í dag sem gerði útslagið í öftustu línu?

„Það var bara hugarfarið, við vorum duglegir. Við settum upp leikplan sem leikmenn sýndu mjög góð viðbrögð við. Við breyttum aðeins pressunni og þeir bara skiluðu frábærri varnarframmistöðu hérna. “

Baráttan framundan verður hörð og þarf Þór að treysta á að grannar þeirra í KA tapi stigum ætli þér sér að halda sæti sínu í deildinni.

„Við erum bara að hugsa um okkur. Við vorum búnir að ákveða það að hjóla á þessa síðustu þrjá leiki, keyra á þetta og bara vinna rest. Tveir leikir eftir núna og við búnir að vinna þann fyrsta svo við ætlum bara að vinna tvo síðustu leikin. “

Sagði Siggi en allt viðtalið við hann má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.