12.10.26 - 09:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Styrktarsjóður Hringfarans stofnar sjóð í nafni Ingva Sveinssonar

Mynd: Baldur Kristjánsson

Mynd: Baldur Kristjánsson
Styrktarsjóður Hringfarans hefur stofnað sjóð í nafni Ingva Sveinssonar sem hefur veitt átta miljóna styrkt til barna- og unglingastarfs hjá Þrótti Reykjavík.
Með framtakinu heiðra hjónin Kristján Gíslason og Ásdís Rósa Baldursdóttir Ingva fyrir óeigingjarnt starf hans í þágu félagsins. Ingvi er formaður sjóðsins.

Tilkynningin
Styrktarsjóður Hringfarans hefur stofnað Knattspyrnusjóð Ingva Sveinssonar með átta milljóna króna stofnframlagi til stuðnings barna- og unglingastarfi Þróttar. Með framtakinu heiðra hjónin Kristján Gíslason og Ásdís Rósa Baldursdóttir Ingva fyrir óeigingjarnt starf hans í þágu félagsins.
Stofnun sjóðsins var fagnað föstudaginn 9. október við fjölmenna móttöku á heimili hjónanna í Sæviðarsundi í Reykjavík.
Ingvi hefur verið Þróttari frá því hann hóf að æfa hjá félaginu sex ára gamall við Holtaveg. Hann hefur lagt félaginu lið sem leikmaður og þjálfari og síðustu 20 ár verið stoð og stytta við uppbyggingu starfsins. Ingvi hefur jafnframt starfað sem kennari við Langholtsskóla um árabil.
„Mér þykir afar vænt um þennan heiður og er innilega þakklátur Kristjáni og Ásdísi fyrir hlýhug þeirra og örlæti,“ segir Ingvi Sveinsson.
Ingvi er formaður nýja sjóðsins. Með honum í stjórn sitja Ásdís Rósa Baldursdóttir, Baldur Kristjánsson og Bjarnólfur Lárusson, formaður Þróttar.
Ásdís segir stuðninginn byggja á trú þeirra hjóna á mikilvægi öflugs félagsstarfs:
„Við trúum því að öflugt og heilbrigt félagsstarf efli börn og unglinga, styrki sjálfsmynd þeirra og gefi þeim vináttu, samkennd og tilfinningu fyrir því að tilheyra. Við teljum jafnframt að í slíku starfi felist mikil forvörn.“
Bjarnólfur Lárusson, formaður Þróttar, segir framtakið endurspegla hugsjón um að gefa til baka:
„Þetta fallega framtak snýst um þakklæti til samfélagsins og þá hugsjón að gefa til baka, til að tryggja að komandi kynslóðir njóti þeirra tækifæra sem aðrir hafa skapað fyrir okkur.“
Tekjur Styrktarsjóðs Hringfarans koma af sölu bóka Hringfarans og heimildamynda sem sýndar hafa verið á RÚV. Kristján og Ásdís standa sjálf straum af öllum framleiðslukostnaði verkefnanna og því renna tekjurnar óskiptar í sjóðinn. Sjóðurinn hefur stutt fjölmörg forvarna-, mennta- og æskulýðsverkefni, bæði á Íslandi og í Afríku.