Fotbolti.net
12.10.26 - 00:28
Kári Snorrason

Ánægður með frumraunina - „Heiður að fá að spila með þessum gaurum“

Auglýsing
Ánægður með frumraunina - „Heiður að fá að spila með þessum gaurum“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi Berg Snæhólm byrjaði óvænt í marki Breiðabliks í viðureign liðsins gegn Keflavík fyrr í kvöld. Gylfi, sem er fæddur árið 2008, spilaði þar með sinn fyrsta deildarleik fyrir félagið en enduðu leikar 3-1, Breiðablik í vil.

Fótbolti.net ræddi við Gylfa að leik loknum.
Lestu um leikinn: Breiðablik 3 - 1 Keflavík
„Heiður að fá að spila með þessum gaurum og frábært að fá sigur í fyrsta leik," sagði Gylfi.

Hvenær fékstu að vita að þú myndir byrja í markinu?
„Ég fékk að vita það með góðum fyrirvara. Kannski viku fyrir, það var spenna og frábært að fá að spila."

Gylfi sagðist vera ánægður með eigin frammistöðu.„Já, heilt yfir líka bara frábær frammistaða hjá liðinu líka heilt yfir. En ég hefði viljað taka þetta mark."

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.