Fotbolti.net
11.10.26 - 23:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Orri fann þörfina til að tjá sig eftir atvikið óhugnanlega - „Hegðun eins og þessi er einfaldlega ekki í lagi”

Orri fann þörfina til að tjá sig eftir atvikið óhugnanlega - „Hegðun eins og þessi er einfaldlega ekki í lagi”
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Orri Hrafn Kjartansson, leikmaður KR, er mjög ósáttur við stuðningsmenn Fram eftir leik liðanna í gær. Orri Hrafn þurfti að fara af velli þegar hann fékk væna byltu og lenti ansi illa á höfðinu. Hann skrifaði pistil á Facebook þar sem hann segir
„Það sem hefur hins vegar setið í mér eftir leikinn er það sem fjölskylda mín og aðstandendur á vellinum þurftu að ganga í gegnum. Á sama tíma þurftu þau að hlusta á stuðningsmenn Fram kvarta yfir því hversu lengi leikurinn væri stöðvaður, kalla á mig að drullast á lappir, segja mig vera aumingja og láta ýmis önnur óviðeigandi ummæli falla," kemur meðal annars fram í pistlinum.

„Þegar pabbi minn, eðlilega orðinn ósáttur við þessa framkomu, kallaði til stuðningsmannanna að haga sér eins og menn, tók einn fullorðinn maður sig til og fór að ögra honum. Með ýmsum athugasemdum, svipbrigðum og handahreyfingum hélt hann áfram að espa upp aðstæður sem voru þegar orðnar erfiðar fyrir fjölskyldu mína."

Þá hrósaði Orri 16 ára bróður sínum fyrir að fara til Framarans og segja honum að það hafi verið pabbi Orra sem lét í sér heyra á móti. Maðurinn baðst afsökunar í kjölfarið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.