Tveir leikir fóru fram í 4.deild karla en báðir voru þeir í C riðli. Topplið GG sem er búið að tryggja fyrsta sætið vann torsóttan sigur gegn Stokkseyri þar sem sigurmarkið kom í uppbótartíma á meðan Berserkir unnu þægilegan sigur gegn Fenri.
C - riðill
Baráttan er svo sannarlega hörð um 2.sætið í riðlinum en Berserkir náðu að aftur að hoppa uppfyrir Hamar í 2.sæti riðilsins en Hamarsmenn geta endurheimt sætið með sigri í leik sem þeir eiga til góða fyrir lokaumferðina. GG er öruggt áfram í fyrsta sæti riðilsins.
Stokkseyri 1 - 2 GG
1-0 Örvar Hugason (16')
1-1 Sigurður Þór Hallgrímsson 28')
1-2 Sjálfsmark
Fenrir 0 - 4 Berserkir
0-1 Alexander Róbert Magnússon (4')
0-2 Kormákur Marðarson (38')
0-3 Sölvi Þrándarson 71')
0-4 Gunnar Jökull Johns (85')
Athugasemdir