Fotbolti.net
05.10.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

Býðst til að hjálpa yfirvöldum á Englandi ef hann fær vernd

Býðst til að hjálpa yfirvöldum á Englandi ef hann fær vernd
Canon

Mynd: Football Leaks / Der Spiegel

Portúgalski uppljóstrarinn Rui Pinto hefur búið í vitnavernd síðustu ár en var á dögunum tilkynnt að hann myndi missa verndina 10. október.
Óttast um öryggi sitt vegna Man City málsins
TENGT EFNI

Óttast um öryggi sitt vegna Man City málsins

Pinto óttast um eigið öryggi eftir að hafa fengið mikið magn hótana í gegnum tíðina og þá var ráðist á hann í Lissabon í apríl. Hann er maðurinn á bak við ýmsa leka sem hafa komið sér illa fyrir vel efnaða aðila og er reiðubúinn til að bjóða fram krafta sína og þekkingu til aðstoðar yfirvalda sem geta veitt honum vernd.

Pinto hrinti af stað söfnun á föstudaginn eftir að hafa verið tilkynnt að hann væri að missa vernd í Portúgal.

The Guardian greinir frá því að Pinto sé reiðubúinn til að starfa með enskum yfirvöldum gegn því að honum sé veitt vernd. Þessa dagana er risastórt mál í gangi gegn Manchester City sem byggist á gögnum sem Rui Pinto lak á sínum tíma í gegnum vefsíðuna sína Football Leaks. Þýski miðillinn Der Spiegel gerði svo ítarlegar fréttir úr lekunum.

Guardian telur augljóst að sérfræðiþekking Pinto á Man City málinu geti komið sér vel fyrir yfirvöld á Englandi.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.