05.10.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
3. flokkur ÍA fullkomnaði þrennuna

Mynd: ÍA

Mynd: ÍA

Mynd: ÍA
ÍA tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í 3. flokki karla með sigri á Breiðabliki í september og lét kné fylgja kviði þegar liðin mættust aftur í bikarúrslitaleiknum um helgina.

TENGT EFNI
ÍA Íslandsmeistari í þriðja flokki
Leikið var í Akraneshöllinni og hafði ÍA betur í fjörugum fimm marka leik, lokatölur 3-2.
U17 landsliðsmaðurinn Styrmir Gíslason skoraði tvennu í sigrinum og hjálpaði Skagastrákum þannig að fullkomna frábæra þrennu á árinu.
ÍA vann Rey Cup í sumar, Íslandsmótið í september og nú bætist bikarinn við í byrjun október.