Callum Wilson, sóknarmaður Newcastle, fór af velli um miðbik seinni hálfleiks gegn Southampton í síðasta leik Newcastle fyrir landsleikjahlé.
Hann var ekki í leikmannahópi Newcastle gegn Manchester United um helgina og verður ekki með í leikjum liðsins næstu vikurnar.
Hann var ekki í leikmannahópi Newcastle gegn Manchester United um helgina og verður ekki með í leikjum liðsins næstu vikurnar.
Samkvæmt heimildum The Athletic bendir allt til þess að Wilson verði frá í sex vikur til viðbótar.
Wilson var markahæsti leikmaður Newcastle í fyrra, skoraði tólf mörk í 26 deildarleikjum og lagði upp fimm mörk.
Athugasemdir