20.09.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Kane: Yamal og Olise áttu frábært tímabil

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Kapphlaupið um Ballon d'Or er að hitna og hafa tveir af líklegustu sigurvegurum ársins verið afar duglegir að ræða við fjölmiðla um verðlaunin.

TENGT EFNI
Yamal: Allir vita að ég og Mbappe erum bestir
Þeir eru Lamine Yamal og Kylian Mbappé, sem eru miklir andstæðingar bæði í spænska boltanum og með ógnarsterkum landsliðum sínum.
Yamal og Mbappé virðast ganga út frá því að þeir tveir endi í toppsætum Ballon d'Or kjörsins og gefur Harry Kane umræðunni lítinn gaum.
„Ég er ekki hrifinn af því að tala mikið um sjálfan mig. Ég tala mínu máli á vellinum, en við erum öll mismunandi. Lamine Yamal átti frábært tímabil og Michael Olise líka. Ég ræð ekki hver vinnur Ballon d'Or," sagði Kane, sem átti ótrúlegt tímabil í fyrra.
Honum tókst hvorki að vinna HM með Englandi né Meistaradeildina með FC Bayern þrátt fyrir að skora 61 mark og gefa 7 stoðsendingar í 51 leik í öllum keppnum með Þýskalandsmeisturunum, auk þess að hafa verið iðinn við markaskorun með enska landsliðinu. Bayern vann þó deild og bikar í Þýskalandi.
Kane svaraði spurningum eftir 7-0 sigur Bayern gegn Union Berlin á föstudagskvöldið. Michael Olise setti þrennu í sigrinum og er kominn með 8 mörk og 4 stoðsendingar í 7 leikjum.
„Bestu leikmennirnir þurfa ekki herferð til að vinna verðlaun. Michael Olise ætti að vera með í samtalinu, hann er einn af bestu leikmönnum í heimi," sagði Max Eberl stjórnandi hjá Bayern eftir sigurinn gegn Union.
Vincent Kompany þjálfari Bayern hrósaði Olise, sem er 24 ára, einnig í hástert að leikslokum.
„Olise hefur komið mér skemmtilega á óvart, bæði sem manneskja og leikmaður. Það er auðvelt að vinna með mönnum eins og honum," sagði Kompany. „Hann er búinn að spila á þessu gæðastigi í næstum því tvö og hálft ár. Hann er klárlega á góðri braut," sagði Kompany.