14.09.26 - 21:08
Ívan Guðjón Baldursson
Besta deildin: Þægilegt fyrir Íslandsmeistarana

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur R. 4 - 1 Keflavík
1-0 Daníel Hafsteinsson ('21 )
2-0 Róbert Orri Þorkelsson ('29 )
3-0 Stígur Diljan Þórðarson ('31 )
4-0 Stígur Diljan Þórðarson ('47 )
4-1 Muhamed Alghoul ('58 )
1-0 Daníel Hafsteinsson ('21 )
2-0 Róbert Orri Þorkelsson ('29 )
3-0 Stígur Diljan Þórðarson ('31 )
4-0 Stígur Diljan Þórðarson ('47 )
4-1 Muhamed Alghoul ('58 )
Lestu um leikinn: Víkingur R. 4 - 1 Keflavík
Íslandsmeistarar Víkings R. fóru létt með Keflavík er liðin mættust í fyrstu umferð í efri hluta Bestu deildar karla eftir tvískiptingu.
Víkingar byrjuðu af krafti og náði Daníel Hafsteinsson forystunni eftir laglegt samspil við Svein Margeir Hauksson á 21. mínútu. Sveinn Margeir lokaði þríhyrningsspili með hælsendingu áður en Daníel skoraði.
Róbert Orri Þorkelsson tvöfaldaði forystuna eftir horspyrnu skömmu síðar eftir skemmtilega útfærslu. Boltinn endaði hjá Róberti Orra Þorkelssyni sem þrumaði honum í slána og þaðan fór boltinn í grasið, aftur í slána og inn. Staðan orðin 2-0 eftir innan við hálftíma.
Tveimur mínútum síðar setti Stígur Diljan Þórðarson þriðja markið með að pota marktilraun Valdimars Þórs Ingimundarsonar yfir línuna. Skot Valdimars var á leið í netið, en Stígur stal markinu með að snerta boltann og var heppinn að vera ekki í rangstöðu.
Staðan var 3-0 í leikhlé og setti Stígur Diljan fjórða markið í upphafi síðari hálfleiks, eftir góða fyrirgjöf frá Valdimar.
Gestirnir frá Keflavík klóruðu í bakkann með marki skömmu síðar eftir að hafa unnið boltann hátt uppi á vellinum eftir vandræði í uppspili Íslandsmeistaranna. Muhamed Alghoul komst inn í slaka sendingu og gerði vel að skora.
Nær komust Keflvíkingar þó ekki og sigldu Víkingar þægilegum sigri í höfn. Lokatölur 4-1.
Víkingur trónir áfram á toppi Bestu deildarinnar með níu stiga forystu á KR. Meistararnir eiga 56 stig eftir 23 umferðir.

TENGT EFNI
Tikkar í 74. og síðasta boxið á Víkingsvelli í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð