Stórlið berjast um Wharton - Liverpool og Man Utd á eftir leikmanni Leipzig - Real Madrid hlustar á tilboð í Camavinga
banner
   sun 15. mars 2026 18:47
Brynjar Ingi Erluson
Carragher harðorður í garð Liverpool - „Hræðileg frammistaða gegn versta liði deildarinnar“
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Fyrrum Liverpool-maðurinn Jamie Carragher gagnrýndi Liverpool harðlega eftir frammistöðu liðsins í 1-1 jafnteflinu gegn Tottenham á Anfield í dag.

Tottenham átti líklega sinn besta leik í margar vikur gegn ríkjandi Englandsmeisturum Liverpool.

Richarlison sá til þess að tryggja Tottenham stig undir lok leiksins og varð það vel verðskuldað.

Carragher segist ekki vera viss hvort það sé rétt fyrir Liverpool að breyta um stjóra á þessum tímapunkti, en að eitthvað verði að gera til þess að koma liðinu aftur á flug.

„Þetta var hræðileg frammistaða. Ég er ekki að reyna vanvirða Tottenham, en þeir eru versta lið úrvalsdeildarinnar í augnablikinu, og líklega síðustu mánuði. Þetta er akkúrat liðið sem þú vilt spila gegn á heimavelli og sérstaklega í ljósi úrslita helgarinnar en síðan bjóða þeir upp á svona frammistöðu. Þetta hefur samt verið svona allt tímabilið.“

„Stóra spurningin sem eru á allra vörum er hvort þetta sé á ábyrgð stjórans eða hvernig hópurinn er settur saman? Gæti nýr stjóri umbreytt þessum týpum af leikmönnum og komið með þessa orku og ákefð aftur í liðið? Ég er ekki viss.“

„Ég held að margt af þessu má tengja við það sem gerðist í sumarglugganum. Þessir prófílar af leikmönnum sem komu inn og í raun bara of margir leikmenn sem vilja bara spila þegar þeir eru með boltann í löppunum. Þeir vilja ekki fara af fullum krafti í þetta og gera sér erfitt fyrir. Þess vegna er svo auðvelt að spila gegn þessu Liverpool-liði,“
sagði Carragher á Sky.

Liverpool er í fimmta sæti deildarinnar eftir úrslit dagsins, tveimur stigum frá Meistaradeildarsæti.
Athugasemdir
banner