Ungverski miðjumaðurinn Dominik Szoboszlai skoraði fjórða aukaspyrnumark sitt í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð er hann kom Liverpool í 1-0 forystu gegn Tottenham á Anfield í dag.
Szoboszlai er að eiga sitt besta tímabil í Liverpool-treyjunni og aukaspyrnur hans verið hans helsta vopn.
Hann skoraði fjórða aukaspyrnumark sitt á 19. mínútu er hann skaut af 25 metra færi og yfir vegginn. Guglielmo Vicario var í boltanum, en tókst ekki að verja.
Miðjumaðurinn er nú aðeins einu aukaspyrnumarki frá því að jafna met David Beckham og Laurent Robert sem skoruðu báðir fimm aukaspyrnumörk á einu tímabili í deildinni. Beckham gerði það tímabilið 2000-2001 með Manchester United og Robert tímabilið á eftir með Newcastle United.
Sjáðu aukaspyrnumark Szoboszlai hér fyrir neðan.
Sjáðu markið hjá Szoboszlai
Athugasemdir


