Ungverjinn Dominik Szoboszlai var vonsvikinn og niðurdreginn eftir 1-1 jafntefli Liverpool gegn Tottenham á Anfield í dag, en hann skilur ekkert í því hvernig liðið fer að því að klúðra leikjum á lokamínútunum.
Szoboszlai skoraði mark Liverpool snemma í fyrri hálfleiknum með skoti úr aukaspyrnu en Richarlison jafnaði metin þegar lítið var eftir af leiknum.
Liverpool gat komist upp í fjórða sæti deildarinnar en klúðraði því tækifæri.
„Þetta eru gífurleg vonbrigði. Ég veit ekki hvað gerðist og hef í raun ekkert að segja. Aftur fáum við á okkur mark á síðustu mínútunni og veit ég hreinlega ekki hversu oft við höfum leyft því að gerast á þessu tímabili. Við verðum að vakna.“
„Ég er bara niðurdreginn. Við verðum að vakna því ef við höldum áfram á sömu braut þá getum við prísað okkur sæla að komast í Sambandsdeildina. Ég veit ekki af hverju þetta er að gerast,“ sagði Szoboszlai.
Athugasemdir



