Rotherham 0 - 1 Coventry
0-1 Leo Ostigard ('70 )
0-1 Leo Ostigard ('70 )
Einn leikur var á dagskrá í ensku Championship deildinni í kvöld.
Rotherham, sem er í fallsæti, fékk Coventry í heimsókn en einungis munaði þremur stigum á liðunum fyrir leikinn í kvöld.
Leo Ostigard reyndist hetja gestanna en hann skoraði eina mark leiksins á 70. mínútu og tryggði því Coventry gífurlega mikilvægan sigur.
Coventry er nú komið sex stigum frá Rotherham en Rotherham á hins vegar tvo leiki til góða á flest lið deildarinnar og því allt ennþá galopið í fallbaráttunni.
Á morgun eru tveir leikir á dagskrá. Blackburn fær Derby í heimsókn og þá mætast Reading og Cardiff.
Athugasemdir