13.10.26 - 20:52
Elvar Geir Magnússon
Rúnar Páll tekur við Stjörnunni (Staðfest)

Rúnar Páll Sigmundsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan varð Íslandsmeistari undir stjórn Rúnars 2014.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Rúnar Páll Sigmundsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Frágengið er að Rúnar Páll Sigmundsson tekur við Stjörnunni að nýju en Garðabæjarfélagið hefur tilkynnt þetta. Rúnar Páll er gríðarlega hátt skrifaður hjá félaginu en hann gerði Stjörnuna að Íslandsmeistara 2014 og bikarmeistara 2018.
Stjarnan hefur átt erfitt tímabil og tveir þjálfarar voru látnir taka pokann sinn í sumar; fyrst Jökull Elísabetarson og síðan Jón Þór Hauksson. Síðustu leiki hafa þriggja til fjögurra manna teymi séð um að þjálfa liðið til bráðabirgða.
Síðustu tvö tímabil hefur Rúnar Páll stýrt Gróttu með góðum árangri. Hann skrifaði undir nýjan samning við Gróttu nýlega en félagið segist hafa náð samkomulagi við Stjörnuna í gær um vistaskipti hans.

Tilkynning Stjörnunnar
Stjarnan hefur ráðið Rúnar Pál Sigmundsson sem þjálfara meistaraflokks karla. Gengið var frá ráðningunni í dag.
Rúnar Pál þarf vart að kynna fyrir Stjörnufólki eða íslensku knattspyrnuáhugafólki. Undir hans stjórn varð Stjarnan Íslandsmeistari í karlaflokki í fyrsta sinn árið 2014, án þess að tapa leik, og vann sinn fyrsta bikarmeistaratitil í karlaflokki árið 2018. Evrópuævintýrið sumarið 2014, sem leiddi liðið alla leið á San Siro gegn Inter, er einnig greypt í minni Stjörnufólks.
Fyrir árangurinn árið 2014 var Rúnar Páll valinn þjálfari ársins af Samtökum íþróttafréttamanna og þjálfari ársins í efstu deild karla að mati fotbolti.net.
Rúnar Páll á stóran þátt í nokkrum af stoltustu stundum í sögu félagsins. Nú snýr hann aftur til uppeldisfélags síns og við horfum með tilhlökkun og metnaði til næsta kafla.
Innan knattspyrnudeildarinnar er mikill metnaður fyrir því að koma Stjörnunni aftur í fremstu röð íslenskrar knattspyrnu og berjast um titla. Jafnframt viljum við endurvekja þá einstöku stemningu sem hefur áður sameinað bæinn og efla samstöðuna sem býr í samfélaginu okkar í Garðabæ.
Við vitum hvað er hægt þegar leikmenn, þjálfarar, starfsfólk og stuðningsfólk leggjast á eitt. Við höfum upplifað það saman og við ætlum okkur að skapa fleiri slíkar stundir.
Velkominn heim, Rúnar Páll!
Tilkynning Gróttu
Rúnar kveður Gróttu
Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari meistaraflokks karla hefur samið við Stjörnuna um að taka við þjálfun meistaraflokks karla hjá félaginu. Grótta og Stjarnan komust í gær að samkomulagi um vistaskipti Rúnars Páls sem er Garðbæingur og þjálfaði Stjörnuliðið með góðum árangri á árunum 2014 til 2021.
Rúnar Páll tók við þjálfun Gróttu haustið 2024 þegar liðið var nýfallið í 2. deild. Sumarið 2025 endurheimti Gróttuliðið sæti sitt í Lengjudeildinni undir stjórn Rúnars og stóð sig vel á liðinni leiktíð þvert á allar spár.
Rúnar er sáttur með tímann sinn hjá okkur:
“Þetta hafa verið frábær tvö ár hjá frábærum klúbbi. Metnaðarfullt fólk stendur að Gróttu og tók vel á móti mér frá fyrsta degi. Takk fyrir mig, Grótta!”
Það er leitt að kveðja Rúnar sem varð að sönnum Gróttumanni á þeim tveimur árum sem hann starfaði á Nesinu. Við þökkum honum kærlega fyrir samstarfið, hans framlags og óskum honum velfarnaðar á heimaslóðum sínum í Garðabæ.