13.10.26 - 19:29
Brynjar Ingi Erluson
Ísland skoraði fimm og er komið í úrslit umspilsins

Ísland er komið í úrslit umspilsins

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland er komið í úrslit umspilsins

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland 5 - 0 Króatía (9-0, samanlagt)
1-0 Hlín Eiríksdóttir ('35 )
2-0 Ída Marín Hermannsdóttir ('40 )
3-0 Katla Tryggvadóttir ('56 )
4-0 Diljá Ýr Zomers ('88 )
5-0 Diljá Ýr Zomers ('90 )
Lestu um leikinn
1-0 Hlín Eiríksdóttir ('35 )
2-0 Ída Marín Hermannsdóttir ('40 )
3-0 Katla Tryggvadóttir ('56 )
4-0 Diljá Ýr Zomers ('88 )
5-0 Diljá Ýr Zomers ('90 )
Lestu um leikinn
Íslenska kvennalandsliðið er komið í úrslit HM-umspilsins eftir stórglæsilegan 5-0 sigur á Króatíu á Laugardalsvelli í kvöld. Ísland vann fyrri leikinn, 4-0, og fer því áfram samanlagt 9-0.
Íslenska liðið mætti til leiks með frábæra stöðu eftir fyrri leikinn og það sást strax að sjálfstraustið var í botni hjá stelpunum.
Ísland hafði algjöra yfirburði frá fyrstu mínútu og skapaði sér urmul af dauðafærum á fyrsta hálftímanum. Boltinn vildi hins vegar ekki inn en það var aðeins tímaspursmál hvenær markið kæmi.
Það var svo Hlín Eiríksdóttir sem braut ísinn á 35. mínútu. Ída Marín Hermannsdóttir lyfti boltanum inn á Hlín sem náði að pota honum undir markvörð Króata og þaðan lak hann í netið.
Ísland hamraði járnið á meðan það var heitt og skömmu síðar var Ída Marín sjálf komin á blað með sitt fyrsta A-landsliðsmark. Sveindís Jane Jónsdóttir keyrði inn í teiginn hægra megin og lagði boltann út á Ídu sem kláraði færið af miklu öryggi.
Íslenska liðið slakaði ekkert á eftir hlé og snemma í síðari hálfleik bætti Katla Tryggvadóttir við þriðja markinu, sem var jafnframt hennar fyrsta fyrir A-landsliðið.
Hlín vann boltann hátt uppi og átti frábæra sendingu inn á Sveindísi sem renndi honum til hliðar á Kötlu. Hún lét ekki bjóða sér það tvisvar og skoraði með skoti undir markvörð Króata.
Á lokamínútunum tók Diljá Ýr Zomers síðan við keflinu og skoraði tvívegis. Fyrra markið kom eftir frábæran undirbúning Lífar Joostsdóttur van Bemmel sem var nýkomin inn á þegar hún kom boltanum á Diljá sem skoraði við fjærstöngina. Rangstaða var upphaflega dæmd en eftir skoðun VAR fékk markið að standa.
Diljá var svo aftur á ferðinni í uppbótartíma og var uppskriftin svipuð. Í þetta sinn var það Birta Georgsdóttir sem fann Diljá við fjærstöngina og hún rak síðasta naglann í kistu Króata.
Magnaður 5-0 sigur Íslands sem fer áfram í úrslit HM-umspilsins þar sem Portúgal verður líklegast andstæðingurinn. Þar á íslenska liðið harma að hefna eftir að hafa misst af sæti á HM fyrir fjórum árum með tapi gegn Portúgal í umspilinu.