Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 15. maí 2021 22:00
Victor Pálsson
4. deild: Skoraði fernu fyrir Hvíta Riddarann
Úr leik hjá Hvíta Riddaranum.
Úr leik hjá Hvíta Riddaranum.
Mynd: Hanna Símonardóttir
Leikmaður að nafni Haukur Hall Eyþórsson átti stórleik fyrir lið Hvíta Riddaranns í dag er liðið spilaði við Vatnaliljur í 4. deildinni.

Haukur skoraði fernu í öruggum sigri Hvíta Riddaranns en liðið var eins og önnur lið í dag að hefja leik í 4. deildinni.

Vængir Júpíters byrja einnig á sigri en liðið vann Úlfana 4-3. Léttir lagði þá Kormák/Hvöt með þremur mörkum gegn tveimur.

Síðasta viðureign dagsins var leikin á Hrafnagilsvelli og þar unnu Samherjar lið KB með fjórum mörkum gegn engu.

Vængir Júpíters 4 - 3 Úlfarnir
0-1 Hilmar Þór Sólbergsson('15)
1-1 Aron Fannar Hreinsson('19)
2-1 Róbert Orri Árnason('38)
3-1 Árni Steinn Sigursteinsson('44)
3-2 Ásgeir Eyþórsson('49)
4-2 Aron Fannar Hreinsson('57)
4-3 Hilmar Þór Sólbergsson('88)

Léttir 3 - 2 Kormákur/Hvöt
1-0 Davíð Már Stefánsson('4)
2-0 Kristján Jóhannesson('29)
2-1 Akil Dexter de Freitas('34)
3-1 Guðmundur Gunnar Sveinsson('59)
3-2 Bouna Dieye('76)

Hvíti Riddarinn 6 - 0 Vatnaliljur
1-0 Haukur Hall Eyþórsson('14, víti)
2-0 Haukur Hall Eyþórsson('21)
3-0 Haukur Hall Eyþórsson('28)
4-0 Haukur Hall Eyþórsson('52)
5-0 Andri Hrafn Sigurðsson('61)
6-0 Eiríkur Þór Bjarkason('78)
Rautt spjald: Zakarías Friðriksson('56, Vatnaliljur)

Samherjar 4 -0 KB
1-0 Eysteinn Bessi Sigmarsson('13)
2-0 Ágúst Örn Viðarsson('22)
3-0 Brynjar Skjóldal Þorsteinsson('24)
4-0 Ingvar Gylfason('67)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner