Fotbolti.net
15.06.26 - 17:58
Brynjar Ingi Erluson

HM: Evrópumeistararnir fundu ekki leið framhjá fertugum Vozinha

Vozinha átti stórbrotna frammistöðu gegn Evrópumeisturunum

Vozinha átti stórbrotna frammistöðu gegn Evrópumeisturunum

Canon

Mynd: EPA

Spánn 0 - 0 Grænhöfðaeyjar
Vozinha mættur í yfir 40 ára hópinn á HM
TENGT EFNI

Vozinha mættur í yfir 40 ára hópinn á HM

Evrópumeistarar Spánverja gerðu óvænt markalaust jafntefli við Grænhöfðaeyjar í H-riðli heimsmeistaramótsins á Mercedes-Benz leikvanginum í Atlanta í Georgíu-ríki í Bandaríkjunum í kvöld.

Spánverjar voru meira með boltann, eins og við var að búast, en náðu ekki að skapa sér mikið í byrjun leiks.

Mesta ógn Grænhöfðeyja kom eftir skyndisóknir og þeirra bestu tilraunir, ef tilraunir mætti kalla, voru einhver ævintýraskot frá miðju eða langt utan af velli.

Spánverjarnir fóru smám saman að færa boltann hraðar sín á milli og voru mikið í því að dæla fyrirgjöfum inn í teiginn. Þar sköpuðust færin og Ferran Torres fékk tvö bestu færi þeirra. Það fyrra kom eftir skallasendingu frá Marc Cucurella, en Ferran setti boltann í slána áður en Vozinha varði frábærlega frá Mikel Oyarzabal.

Vozinha var aftur kallaður til nokkrum mínútum síðar þegar Ferran fékk boltann í teignum og stýrði honum út við stöng, en þessi fertugi markvörður var eins og köttur í markinu. Hann átti síðan aðra laglega vörslu frá Aymeric Laporte eftir hornspyrnu og var langbesti maður Grænhöfðeyja í leiknum.

Markalaust var í hálfleik og Spánverjar þurftu að fínpússa sóknarleikinn til að koma sér almennilega í gang.

Þetta fór ágætlega af stað í síðari hálfleik. Þeir komu sér í góðar stöður en reyndu skotin fyrir utan teig og boltarnir flugu framhjá án þess að hreyfa við Vozinha í markinu.

Lið Grænhöfðaeyja var mjög vel skipulagt varnarleika. Héldu línu, voru þéttir og leyfðu Spánverjum ekki að koma boltanum á milli lína.

Spánverjar áttu Lamine Yamal á bekknum, sem rétt náði að jafna sig í tæka tíð fyrir HM, en Luis de la Fuente, þjálfari liðsins, vildi koma honum hægt af stað inn í mótið og reyna að spara hann sem best gegn Grænhöfðaeyjum sem eru einhverjum 65 sætum fyrir neðan Spánverja á heimslista FIFA.

Yamal var kynntur til leiks eftir vatnspásuna í síðari hálfleiknum ásamt Mikel Merino, en Fabian Ruiz og Gavi fóru af velli.

Orkan breyttist eftir innkomu Yamal sem var að leika sér að Grænhöfðaeyjum og náði strax að skapa hættulegt færi er hann lék á varnarmann, kom honum á Marcos Llorente og þaðan inn á miðjan teiginn en skotið beint á Vozinha.

Síðustu mínúturnar reyndu Spánverjar allt sem þeir gátu í að reyna finna leiðir í gegnum vörn Grænhöfðaeyja en fundu engin svör. Markalaust jafntefli niðurstaðan í stórkostlegri varnarframmistöðu og það á fyrsta heimsmeistaramóti Grænhöfðaeyja.

Spánn: Simon (M), Llorente, Cubarsi, Laporte, Cucurella, Ruiz (Merino '77), Rodri (Williams '87), Pedri, Gavi (Yamal '77), Ferran (Olmo '81), Oyarzabal.

Grænhöfðaeyjar: Vozinha (M), Moreira, Lopes, Borges (Joao Paulo '76), Lopes-Cabral, Lenini, Mendes, Duarte (D. Duarte '61), Monteiro (Arcanjo '79), Cabral (Semedo '61), Livramento (Da Costa '61).

Úrúgvæ og Sádi-Arabíu mætast í hinum leik riðilsins klukkan 22:00 í kvöld en hann er spilaður á Hard Rock-leivaknginum í Miami í Bandaríkjunum.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Mikel Oyarzabal í baráttunni í leiknum

Mikel Oyarzabal í baráttunni í leiknum

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.