Fotbolti.net
15.06.26 - 13:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Kemur í ljós í dag hvort lykilmaður Víkings verði með

Gunnar ætti að geta spilað á morgun

Gunnar ætti að geta spilað á morgun

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Varnarmaðurinn Gunnar Vatnhamar er tæpur fyrir stórleik Víkings og KR á morgun. Færeyski landsliðsmaðurinn fór af velli undir lok leik í leik með Færeyjum í liðnu landsleikjahléi og var ekki með Víkingum gegn ÍA í bikarleiknum á föstudag.

Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, segir að Gunnar verði prófaður á æfingu í dag og séð til hvort hann geti spilað.
Hrifinn af öllu hjá sínu gamla félagi - „Ef ég þyrfti að velja einn þá myndi ég velja hann"
TENGT EFNI

Hrifinn af öllu hjá sínu gamla félagi - „Ef ég þyrfti að velja einn þá myndi ég velja hann"

„Gunnar Vatnhamar ætti að vera klár, það kemur í ljós á æfingu í dag. Hann fékk einhvern slink undir lok leiks með Færeyjum og hefur verið í bómull síðan þá. Við þurfum að prófa hann í dag og sjá hvort hann geti verið með," segir Sölvi.

En hvernig er staðan með Nikolaj Hansen?

„Niko er að koma til baka eftir meiðsli, hefur verið með á æfingum og er að nálgast að vera leikfær," segir þjálfarinn.

Leikurinn á morgun hefst klukkan 19:15 og fer fram á Víkingsvelli. Uppselt er á leikinn sem verður að sjálfsögðu í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net.
Danski markaskorarinn hefur ekki spilað í síðustu átta leikjum Víkings.

Danski markaskorarinn hefur ekki spilað í síðustu átta leikjum Víkings.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta karla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
7Stjarnan22-828
8Valur22-627
9FH22-1221
10Þór22-2821
11KA22-1320
12ÍBV22-1318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.