Fotbolti.net
06.06.26 - 12:52
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Skrifar frá: Viðtal

Hrifinn af öllu hjá sínu gamla félagi - „Ef ég þyrfti að velja einn þá myndi ég velja hann"

Fylgist vel með sínu gamla félagi

Fylgist vel með sínu gamla félagi

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Júlíus Magnússon er uppalinn hjá Víkingi og sneri aftur til Íslands eftir veru í Hollandi fyrir tímabilið 2019. Hann varð bikarmeistari með Víkingi 2019 og svo aftur 2021 og 2022. Hann varð einnig Íslandsmeistari 2021. Fyrir tímabilið 2023 hélt hann svo út í atvinnumennsku og hefur spilað með Fredrikstad, þar sem hann varð norskur bikarmeistari 2024, og er núna á sínu öðru tímabili með Elfsborg í Svíþjóð.

Júlíus var til viðtals hér á Fótbolti.net í vikunni. Hann var spurður út í ríkjandi Íslandsmeistaranna í Víkinni og hvernig væri að fylgjast með liðinu sem mallar eins og vel smurð vél í Víkinni.
„Meðvitaður um að það koma ekki mörg tækifæri til að fara í stærri deildir"
TENGT EFNI

„Meðvitaður um að það koma ekki mörg tækifæri til að fara í stærri deildir"

„Það er bara geggjað að fylgjast með þessu, allri heildarmyndinni; leikmönnum, leikstíl, þjálfaranum og því sem er að gerast á bakvið tjöldin. Það er allt gert rétt og það er ákveðið og sett markmið á bakvið allar ákvarðanir. Ég er hrifinn af öllu því sem verið er að gera, í hvert sinn sem ég horfi á leiki eða les fréttir, það er eitthvað jákvætt í gangi. Liðið er á allt öðru stalli en ég gat búist við þegar ég fór. Ég var stressaður að einhver yrði fenginn inn sem myndi ekki fylla skarðið sem ég og aðrir leikmenn skildu eftir, en það hefur eiginlega alltaf verið gert betur en var fyrir þegar menn hafa verið sóttir eftir sölur. Það er bara æðislegt að fylgjast með þessu," segir Júlíus.

„Það eru nokkrir ungir og ferskir leikmenn sem maður er spenntur að fylgjast með, leikmenn fram á við eins og Óskar Bogga. Ég fylgist líka vel með mínum gömlu félögum; Ella (Erlingi) og Davíð Atla(son) og fleiri. Þó að þeir hafi ekki fengið eins margar mínútur og síðustu ár, þá er tengingin við þá alltaf til staðar, góðir vinir mínir. Svo fylgist ég mest með mönnum í minni stöðu, maður er með meiri greindaraugu á miðjumenn. Blandan í liðinu er það góð að það er eiginlega alltaf næst að horfa á leiki liðsins, maður er einhvern veginn aldrei stressaður eða pirraður út af einhverjum ákvarðanatökum. Þetta annað hvort reddast alltaf eða er í góðu flæði allan tímann. Það er búið að vera æðislegt að horfa á liðið."

Hann var spurður hvort hann gæti nefnt besta leikmann liðsins, eða þann mikilvægasta. Gætir þú hent því fram?

„Það er mjög erfitt að segja, þetta er svolítið þannig að ef einn dettur út þá kemur annar í staðinn. Það er eiginlega hægt að fylla í allar stöður ef menn detta út, það kemur maður í manns stað."

„En ég myndi kannski segja að Gunnar Vatnhamar sé hryggjarsúlan, þó að allir í kringum hann séu álíka mikilvægir. Mér finnst hann vera með X-faktor í sinni stöðu sem er eiginlega ekki hægt að fylla upp í þegar hann er fjarverandi. Ef ég þyrfti að velja einn þá myndi ég velja hann,"
segir Júlíus.
Víkingur hefur unnið níu leiki í röð í Bestu deildinni.

Víkingur hefur unnið níu leiki í röð í Bestu deildinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Færeyski varnarmaðurinn Gunnar Vatnhamar hefur reynst Víkingi ofboðslega vel.

Færeyski varnarmaðurinn Gunnar Vatnhamar hefur reynst Víkingi ofboðslega vel.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.15+3840
2KR16+2235
3Fram15+1333
4Breiðablik14+825
5Valur16-619
6Keflavík14-716
7ÍBV14-715
8Stjarnan15-815
9ÍA14-915
10KA14-813
11FH14-1111
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.