15.08.26 - 20:29
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Halli: Eigum ennþá til góða að vinna tvo leiki í röð
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Menn voru tilbúnir að hlaupa út um allan völl, þetta var frábær sigur," sagði Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, eftir sigur á Þór í dag.
„Frábært mark hjá Eiði, mörk breyta leikjum. Það var mikið jafnræði í leiknum fram að því, mikið um stöðubaráttur og boltinn mikið í loftinu. Eftir það fáum við smá ró og náum að spila boltanum betur á milli okkar."

„Hann segir að hann hafi flaggað rangstöðu. Ég fékk ekki frekari skýringar, þetta var eftir hornspyrnu, það hlýtur að hafa verið einhver snerting á undan," sagði Halli.
Eiður Orri Ragnarsson skoraði bæði mörk liðsins. Annað með glæsilegu langskoti og hitt eftir skyndisókn.
„Hann var mjög góður ásamt fleirum. Muha (Muhamed Alghoul) frábær líka. Hann er búinn að vera frá aðeins vegna meiðsla. Margir sem stigu upp og áttu flottan leik."
Keflavík er í 5. sæti eins og er en liðið fær ÍBV í heimsókn í næstu umferð.
„Við eigum ennþá til góða að vinna tvo leiki í röð. Nú erum við búnir að vinna einn og það er spurning hvort við getum ekki farið að vinna tvo leiki í röð," sagði Halli.