Fotbolti.net
15.08.26 - 17:23
Kári Snorrason

Jón Daði riftir við Selfoss (Staðfest)

Var samningsbundinn Selfossi út næsta tímabil.

Var samningsbundinn Selfossi út næsta tímabil.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Daði Böðvarsson rift samningi sínum við Selfoss. Hann var ekki í leikmannahóp liðsins sem vann 6-2 sigur á Fjölni fyrr í dag.

Jón, sem er 34 ára gamall, hefur spilað tíu deildarleiki með liðinu á tímabilinu og skorað í þeim þrjú mörk. Hann sneri aftur í uppeldisfélagið síðasta sumar frá Burton.

Fyrr í sumar fjallaði Fótbolti.net að Jón hafi verið sendur heim af æfingu og var hann í kjölfarið ekki í leikmannahópi liðsins í næstu tveimur leikjum.

Í hlaðvarpsþættinum Chess After Dark ræddi Jón um atvikið og sagði Óla Stefán Flóventsson, þjálfara liðsins, hafa rekið sig réttilega af æfingunni og að hann væri harðákveðinn í að vera áfram í Selfossi.

Félagaskiptaglugginn í Bestu deildinni lokaði síðastliðinn miðvikudag. Glugginn í neðri deildum hefur verið lokað lengur og því ljóst að hann spilar ekki með öðru íslensku liði á tímabilinu.
Jón Daði harðákveðinn í að vera áfram á Selfossi: Hann réttilega rak mig bara af æfingu
TENGT EFNI

Jón Daði harðákveðinn í að vera áfram á Selfossi: Hann réttilega rak mig bara af æfingu

Tilkynning Selfoss:
Knattspyrnudeild Selfoss og Jón Daði Böðvarsson hafa komist að samkomulagi um að rifta samningi sín á milli.

Frá komu Jóns Daða til Selfoss hafa aðilar lagt sig fram af heilindum og metnaði í þágu félagsins. Eftir yfirferð á stöðu mála og með hagsmuni beggja aðila að leiðarljósi hafa félagið og leikmaðurinn komist að gagnkvæmu samkomulagi um að ljúka samstarfi sínu. Riftun samningsins er gerð í fullri sátt og með gagnkvæmri virðingu að leiðarljósi.

„Ég hafði mikinn áhuga á því að hjálpa til við að byggja upp starfið á Selfossi. Allt á sinn tíma, og taldi ég þetta rétt í stöðunni. Þrátt fyrir að leiðir skilji núna mun ég alltaf líta hlýjum augum til fólksins í Selfoss og óska félaginu alls hins besta í framtíðinni,” segir Jón Daði við þessi tímamót.

Guðjón Bjarni Hálfdánarson, formaður knattspyrnudeildar Selfoss, þakkar Jóni tímann á Selfossi.

„Frá fyrsta degi var markmiðið að Jón Daði myndi hjálpa til við að byggja upp félagið á komandi árum. Jón Daði hefur sýnt mikinn metnað á meðan krafta hans naut við. Jón Daði skilur eftir sig dýrmæta þekkingu hjá félaginu og munum við halda áfram á okkar vegferð að byggja upp öflugt félag í íslenskri knattspyrnu,” segir Guðjón.

Félagið vill færa leikmanninum þakkir fyrir störf sín í þágu þess og óskar honum farsældar í þeim verkefnum sem hann tekur sér fyrir hendur.
Skorað þrjú mörk í tíu deildarleikjum á tímabilinu.

Skorað þrjú mörk í tíu deildarleikjum á tímabilinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sneri aftur í uppeldisfélagið síðasta sumar.

Sneri aftur í uppeldisfélagið síðasta sumar.

Canon

Mynd: Selfoss

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.