Fotbolti.net
15.09.18 - 17:02
Valur Gunnarsson

Fúsi: Ég verð ekki áfram með liðið

Auglýsing
Fúsi þjálfar ekki Leikni á næsta tímabili

Fúsi þjálfar ekki Leikni á næsta tímabili

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<i>Ég er ágætlega sáttur við spilamennskuna. Það vantaði smá slagkraft á síðasta þriðjung. Við hefðum bara átt að vinna þennan leik, við sköpuðum nokkur færi en bara náðum ekki að nýta þau.</i>
Sagði Vigfús Arnar Jósepsson eftir markalaust jafntefli gegn Haukum fyrr í dag.
Það komu kaflar þar sem það var æfingaleiksbragur á leiknum en mér fannst hann samt vel spilaður. Menn voru að tengja sendingar vel á milli og taktískt að gera góða hluti þannig að ég var ánægður með það.

Aðspurður hversu sáttur hann er með tímabilið sagði Fúsi:
Ég er mjög ánægður með strákana og liðið. Við vorum í neðsta sæti þegar ég tek við og markatalan ekki góð hjá okkur. Við höfum verið stigvaxandi þegar hefur liðið á sumarið og við höfum náð okkar markmiðum sem við settum okkur þegar leið á sumarið. Við höfum bætt okkur helling og erum sterkari sem lið núna í lok sumars heldur en í byrjun sumars.

Aðspurður hvort hann haldi áfram með liðið sagði Fúsi:
Ég verð ekki áfram með liðið. Leiknir er mitt lið og ég dýrka það og dái og það er búið að vera mjög gaman að þjálfa hérna. Ég ætlaði mér að kynnast þjálfarastarfinu og vera aðstoðarþjálfari en síðan æxluðust hlutirnir þannig að ég er orðinn aðalþjálfari og ég klára það verkefni núna en mínar aðstæður bjóða ekki uppá það að vera þjálfari í Inkasso deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.