Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 15. september 2021 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimild: Feykir 
Guðni Þór hættur hjá Tindastóli - Óvíst með Óskar Smára
Óskar Smári og Guðni Þór
Óskar Smári og Guðni Þór
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðni Þór Einarsson er hættur sem þjálfari kvennaliðs Tindastóls. Frá þessu var greint eftir síðasta deildarleik Tindastóls í deildinni og síðan vakin athygli á þessu á Feykir.is í dag.

Guðni hefur þjálfað liðið undanfarin ár, fyrst þrjú tímabil með Jóni Stefáni Jónssyni og nú í sumar með Óskari Smára Haraldssyni.

Guðni er að flytja sig um set suður yfir heiðar. Árangur Tindastóls með hann við stýrið er frábær. Liðið fór upp úr 2. deild sumarið 2018, endaði í 3. sæti næstefstu deildar 2019 og sigraði síðan Lengjudeildina síðasta sumar.

Í sumar var liðið í fyrsta sinn í efstu deild og endaði í næstneðsta sæti deildarinnar eftir mikla baráttu um sæti í deildinni á næsta ári.

Óskar Smári er með lausan samning hjá Tindastóli og óvíst hvert framhaldið hjá honum verður.
Athugasemdir
banner
banner