Fotbolti.net
16.09.26 - 14:14
Elvar Geir Magnússon

Arnar væri með tvöfalt fleiri titla ef ekki væri fyrir Ísak

Ísak Snær með Íslandsmeistaraskjöldinn 2024.

Ísak Snær með Íslandsmeistaraskjöldinn 2024.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
„Þetta er leikmaður sem ég ætti persónulega ekki að þola," segir Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari á léttu nótunum um Ísak Snæ Þorvaldsson. „Hann hefur komið í veg fyrir að mínir titlar væru fjórir en ekki tveir."

Ísak Snær er valinn í landsliðshóp Íslands fyrir gluggann langa. Hann hefur skorað þrjú mörk og lagt upp tvö til viðbótar fyrir Lyngby í dönsku deildinni á tímabilinu.

Arnar gerði Víking tvívegis að Íslandsmeisturum, 2021 og 2023. Ísak lék með Breiðabliki sem vann titilinn 2022 og 2024. Ísak var leikmaður ársins 2022 og í liði ársins 2024.
Gefur tilefni til að ræða hann í samhengi við landsliðið
TENGT EFNI

Gefur tilefni til að ræða hann í samhengi við landsliðið

„Hann var 'pain in the ass' þegar hann var með Blikunum. Í minningunni var hann alltaf virkilega öflugur og vantaði bara smá sjálfstraust eða meira kannski spark í rassinn til að sjá að hann ætti heima á hærra getustigi."

„Svo byrjaði hann að spila í dönsku úrvalsdeildinni, sem er mjög sterk deild, og það sýnir hvaða leveli menn geta náð. Ég held að þakið hans sé hærra en hann gerir sér grein fyrir sjálfur. Vonandi, núna með því að fá hann inn í okkar aðalhóp þá erum við að hjálpa honum að ná þessu leveli og hjálpa okkar landsliði að verða betra. Því hann kemur með allt öðruvísi dínamík inn í okkar flóru og ég tel að hans leikstíll henti landsliðsumhverfi mjög vel ,“ segir Arnar.

Ísak fór með landsliðinu í vináttulandsleik gegn Japan fyrr á árinu og kom þar inn á lokamínútunum.

„Maður sá þar að hann er virkilega flottur á æfingum. Flottur að taka taktískum leiðbeiningum og flottur strákur í heildina."

Það eru tíu dagar í að Ísland hefji leik í riðli sínum í C-deild Þjóðadeildarinnar. Eistland, Lúxemborg og Búlgaría eru með okkur í riðli. Ísland tekur á móti Eistlandi á Laugardalsvelli laugardaginn 26. september. Svo koma leikir gegn Lúxemborg úti og Búlgaríu heima. Glugganum lýkur á öðrum leik við Eistland, þá á útivelli.
Arnar Gunnlaugsson.

Arnar Gunnlaugsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.