Fotbolti.net
16.09.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Mourinho: Annað hvort drepum við leikinn eða hann okkur

Jose Mourinho

Jose Mourinho

Canon

Mynd: EPA

Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, talaði mjög opinskátt um frammistöðu liðsins eftir torsóttan 3-2 sigur á botnliði Elche í gær.
Spánn: Aftur skoraði nýi maðurinn seint sigurmark
TENGT EFNI

Spánn: Aftur skoraði nýi maðurinn seint sigurmark

Mourinho var ánægður með að sjá Real Madrid komast í tveggja marka forystu og taldi liðið geta gengið frá leiknum með stórsigri. Madrídingar slökuðu hins vegar á klónni og Elche náði að jafna áður en Carlos Espi skoraði sigurmarkið undir lokin eftir að hafa komið inn á sem varamaður.

„Það eina sem ég get sagt er að þetta voru bara þrjú stig. Eftir fyrri hálfleikinn var tilfinningin sú að við hefðum getað skorað þrjú, fjögur eða fimm mörk í þeim seinni, en við minnkuðum ákefðina og gáfum andstæðingnum of mikið svæði.“

„Ég reyndi að færa meiri stöðugleika á miðjuna með því að setja Jude Bellingham og Brahim Diaz inn á, en þá skoraði Elche. Á svona leikvöngum, með svona stuðningsmenn, getur lið sem leit út fyrir að vera dautt vaknað aftur til lífsins.“

„Við erum með mikla hæfileika og tókum mestu mögulegu áhættuna. Leikmennirnir fengu þá tilfinningu að við gætum ekki tapað og við vorum mjög góðir á lokamínútunum.“

„Leikmennirnir eru samheldnir og áhugasamir og það er vinátta og skuldbinding í hópnum. Eina gagnrýnin mín er sú að við getum drepið leiki en gerum það ekki. Við gáfum liði sem leit út fyrir að vera dautt tækifæri til að koma aftur til lífsins.“

„Vandamálið er nokkuð skýrt fyrir mér. Það eru leikir sem virðast búnir en eru það ekki. Eina skýringin er sú að við lítum á þá sem auðvelda og drepum þá ekki. Svo fer þetta úr því að virðast einfalt yfir í að við missum stjórnina.“

„Á svona leikvöngum, með fullar stúkur og frábæra stuðningsmenn, verður þetta erfitt. Það jákvæða er að þegar erfiðleikastigið eykst þá bregst liðið við og vinnur leikinn. Það er það mikilvægasta.“

„Það er annað jákvætt við þetta líka. Engum leiðist að horfa á Real Madrid því leikirnir okkar eru alltaf skemmtilegir,“
sagði Mourinho.

Hann tók Arda Güler af velli og sagði ástæðuna hafa verið að ákefð Tyrkjans hefði minnkað verulega.

„Enginn er ósnertanlegur. Þegar ég geri svona breytingar er það vegna þess að við erum að missa stjórnina. Arda fór að missa ákefðina og þegar maður spilar í tíunni þarf maður að hlaupa um allan völl.“

Mourinho sagði leikinn hafa haft fleiri en eitt andlit og lauk máli sínu á eftirminnilegan hátt.

„Þegar liðið var gott þá var það mjög gott. Við spiluðum okkur vel undan pressunni og sýndum mikil gæði, en þetta var leikur með tvö andlit. Eða jafnvel þrjú, ef ég á að vera nákvæmur, því undir lokin var þetta einfaldlega: annað hvort drepum við leikinn eða leikurinn drepur okkur,“ sagði Mourinho.
Carlos Espi var hetjan eftir stoðsendingu Kylian Mbappe

Carlos Espi var hetjan eftir stoðsendingu Kylian Mbappe

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.