16.09.26 - 09:42
Heiðar Birnir Torleifsson
Börn eru ekki litlir atvinnumenn

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Aðsend

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skoðanapistill
[email protected]
Heiðar Birnir Torleifsson
Ungir leikmenn þ.e. börn mótast af því umverfi sem þau alast upp í. Þess vegna þarf umhverfið að vera öruggt, hvetjandi, skipulagt og agað á jákvæðan hátt.
Umhverfi barna í fótbolta er of mikið “fullorðins”.
Þegar aðal áherslan er lögð á sigur og árangur í úrslitum er klárt að uppeldis og hæfileikamótunar markmið nást ekki. Í þannig umhverfi verður þjálfunin öðruvísi en hún hefði annars orðið og missa börnin af mikilvægri þjálfun og íþróttalegu uppeldi.
Börn taka eftir miklu fleiri hlutum en bara þeim orðum sem viðhöfð eru.
Hegðun fullorðna fólksins mótar það umhverfi sem börn alast upp í og því er mikilvægt að hljóð og mynd fari saman eins og sagt er.
Ungum leikmönnum er sagt að frammistaða sé mikilvæg. Samt sem áður er árangur verðlaunaður á undan hegðun.
Þeim er einnig sagt að vera hugrökk og að mistök séu hluti af lærdómsferlinu en svo er brugðist þannig við að þau verða hrætt við mistök og þora aldrei að gera neitt sem gæti hugsanlega mistekist.
Börnum er mjög oft umbunað eða refsað hvernig þau líkamlega þroskast. Bráðþroska börn verða oft af mikilvægri þjálfun á tilteknum aldri sem verður svo til þess að þau missa af lestinni síðar meir. Hvaða skilaboð eru það að umbuna eða refsa börnum fyrir eitthvað sem þau stjórna ekki sjálf?
Fagmennska er lykilatriði. Orðatiltækið “æfingin skapar meistarann” þekkja flestir. Orðatiltækið ætti frekar að vera “rétt æfing skapar meistarann” hvar hægt er að æfa rangt og hafa einlæglega rangt fyrir sér.
Að þjálfa grunnfærni einstaklingsins á yngri stigum sem aðrir þættir leiksins byggjast á er lykilatriði. Einnig góða íþrótta hegðun og virðingu. Kenna börnum að takast jafnt á við mótlæti sem og meðbyr.
Máttur endurtekningarinnar er mikill og þjálfarar þurfa að vera klókir í að gera æfingar bæði skemmtilegar og krefjandi og fela endurtekningar t.d. í formi keppna inni á æfingum o.frv.
Góðar stundir.