Fotbolti.net
16.10.26 - 19:33
Ívan Guðjón Baldursson

Linta: Þurftum aðeins breiðari hóp

Auglýsing
Linta: Þurftum aðeins breiðari hóp
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, svaraði spurningum frá Tryggva Guðmundssyni eftir 3-1 sigur gegn FH í dag.
Lestu um leikinn: ÍBV 3 - 1 FH
Eyjamenn sýndu mikið hjarta og skópu sigurinn þrátt fyrir að leika manni færri stærsta hluta leiksins.

„Við vorum óheppnir á þessu tímabili með meiðsli og leikbönn á slæmum tímasetningum. Á tímapunktum vorum við ekki með nægilega góðan leikmannahóp fyrir Bestu deildina," sagði Aleksandar. „Við áttum nokkra góða leiki þar sem við áttum skilið að vinna en vorum óheppnir með úrslitin. Við gáfum mikið af ungum leikmönnum tækifæri og hefðum mögulega bjargað okkur frá falli hefðum við verið með aðeins breiðari hóp.

„Við vorum oft að spila vel þó að við töpuðum. Við reyndum okkar besta en þetta gekk ekki.

„Við gætum hæglega verið með fjögur auka stig á þessum tímapunkti og þá værum við ennþá á lífi í fallbaráttunni. Svona er fótboltinn. Það mikilvæga er að halda haus og svara fyrir sig."
Linta: Þurftum aðeins breiðari hóp
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.